Morgunblaðið - 10.11.2008, Page 36
Söluhæstu tónlistarmenn allra tíma
Meira en 500 milljón eintök seld:
Bítlarnir
Starfandi:
1960-1970
Bing Crosby
Starfandi:
1926-1977
Michael Jackson
Starfandi:
1967 -
Frank Sinatra
Starfandi:
1935 - 1995
Elvis Presley
Starfandi:
1953 - 1977
200–499 milljón eintök seld:
AC/DC
Starfandi
1973 -
R. Rahman
Starfandi
1992 -
ABBA
Starfandi
1972 - 1982
Alla Pugacheva
Starfandi
1965 -
Bee Gees
Starfandi
1958 - 2003
Bob Marley
Starfandi
1932 - 1981
Celine Dion
Starfandi
1981 -
Cher
Starfandi
1964 -
Cliff Richard
Starfandi
1958 -
The Drifters
Starfandi
1935 -
Elton John
Starfandi
1964 -
Herbert von Karajan
Starfandi
1938 - 1989
Julio Iglesias
Starfandi
1968 -
Led Zeppelin
Starfandi
1968 - 1980
Madonna
Starfandi
1982 -
Nana Mouskouri
Starfandi
1958 -
Pink Floyd
Starfandi
1964 - 1994
Queen
Starfandi
1970 - 1991
Rolling Stones
Starfandi
1962 -
Tino Rossi
Starfandi
1929 - 1982
Wei Wei
Starfandi
1986 -
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ABBA? Queen? Bítlarnir? Presley?
Led Zeppelin? Eða kannski Michael
Jackson? Hver hefur ekki lent í því
að skeggræða hver sé vinsælasti
flytjandi tónlistar í heiminum fyrr og
síðar? Líklega hafa slíkar umræður
hingað til einkennst af getgátum og
huglægu mati, enda ekki gott að
segja við hvað skuli miðað. Nú geta
þeir sem vilja leiða þessi mál til lykta
hins vegar tekið gleði sína. Á Wiki-
pedia má nefnilega finna lista yfir þá
tónlistarmenn sem selt hafa flestar
plötur í sögunni. Sá varnagli er þó
sleginn á síðunni að eingöngu sé um
áætlaðar tölur að ræða, enda séu
óskeikular sölutölur hvergi til. List-
inn ætti þó að gefa ansi sterka vís-
bendingu um hvaða flytjendur hafa
selt flestar plötur, og þar af leiðandi,
hverjir þeirra hafa verið vinsælastir.
Fimm stærstu
Aðeins fimm flytjendur hafa selt
yfir 500 milljónir platna, en það gerir
um það bil eina plötu á hverja 13
jarðarbúa.
Það kemur líklega fæstum á óvart
að Bítlarnir séu þar á meðal, enda af
flestum talin besta hljómsveit allra
tíma. Þá er ekki nema von að þeir
Elvis Presley og Michael Jackson
komist á þennan lista, enda tveir af
þekktustu tónlistarmönnum 20. ald-
arinnar þar á ferð.
Óvæntari er þó vera þeirra Franks
Sinatra og Bing Crosby á meðal
fimm söluhæstu flytjendanna, enda
kannski ekki af sömu stærðargráðu
og þeir sem áður voru nefndir. Hluti
skýringarinnar liggur þó í því að báð-
ir voru þeir starfandi um gríðarlega
langt skeið, Crosby frá 1926 til 1977
og Sinatra frá 1935 til 1995.
Kemur á óvart
Samkvæmt listanum hefur 21
flytjandi selt á bilinu 200 til 499 millj-
ónir platna. Þar á meðal eru þekktar
stærðir á borð við AC/DC, Abba, Bee
Gees, Bob Marley, Elton John, Led
Zeppelin, Madonnu, Pink Floyd,
Queen og Rolling Stones. Eflaust
kemur það hins vegar mörgum á
óvart að listamenn á borð við Celine
Dion, Cher, Cliff Richard, The Drift-
ers og Julio Iglesias skuli hafa selt
eins margar plötur og raun ber vitni.
Þá eru einnig á þeim lista listamenn
sem hafa fyrst og fremst gert það
gott í heimalöndum sínum, hinn ind-
verski A.R. Rahman, hin rússneska
Alla Pugacheva, Grikkinn Nana Mo-
uskouri, hinn franski Tino Rossi að
ógleymdri kínversku söngkonunni
Wei Wei sem kemst á listann í krafti
gríðarlegs fjölmennis þjóðar sinnar.
Þá má ekki gleyma austurríska
stjórnandanum Herbert von Karaj-
an sem er eini „klassíski“ tónlist-
armaðurinn á listanum.
Ekki ofar?
Á næsta lista eru flytjendur sem
hafa selt á bilinu 100 til 199 milljónir
eintaka. Þar eru hvorki meira né
minna en 68 flytjendur, margir mjög
þekktir en aðrir minna. Það kemur á
óvart að nokkrir þeirra flytjenda hafi
ekki selt fleiri plötur, til dæmis U2,
David Bowie, George Michael og
Metallica.
Þeir vinsælustu frá upphafi
Wikipedia raðar upp söluhæstu flytjendum sögunnar
Átta breskir flytjendur og sjö bandarískir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP
RESCUE DAWN kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FERÐIN TIL TUNGLSINS kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:30 - 6 - 8:30 LEYFÐ
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
EAGLE EYE kl. 5:40 LÚXUS VIP
SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 Síðasta sýning LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM
ÓTRÚLEG AFREK STRÍÐSFANGA Í VÍETNAMSTRÍÐINU
CHRISTIAN BALE
SÝNIR AFHVERJU HANN
ER FREMSTI LEIKARI Í HEIMI Í
MYND SEM HLOTIÐ HEFUR LOF
VÍÐSVEGAR UM HEIM.
SÝND Í KRINGLUNNI
TOPP GRÍNMYND -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL -S.V., MBL- Þ.Þ., DV
RESCUE DAWN kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
FERÐIN TIL TUNGLSINS kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40D - 8D LEYFÐ DIGITAL
EAGLE EYE kl. 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL
SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE CENTER ... Sýnd á laugardag og sunnud. LEYFÐ 3D - DIGITAL