Morgunblaðið - 10.11.2008, Page 40
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„RJÓMAKANNAN er frá móður
minni og kemur frá foreldrum
hennar,“ segir Elísabet Kristjáns-
dóttir frá Ísafirði sem varð fyrir
þeirri skemmtilegu upplifun í gær
að sjá í fyrsta sinn samstætt syk-
urkar við rjómakönnu sína frá árinu
1809.
Þetta gerðist í Þjóðminjasafninu
þar sem fólki var boðið að koma
með gamla hluti til skoðunar. Móð-
urafi Elísabetar var frá Læk í Að-
alvík og hét Finnbjörn Her-
mannsson.
Elísabet segir að það hafi verið
algjörlega óvænt að sjá þarna líka
sykurkarið úr sama stelli. Fleiri
merkilegir hlutir hafa komist í
hendur Elísabetar úr búi móður
hennar sem skoðaðir hafa verið í
Þjóðminjasafninu.
Skemmtileg tilviljun
Jakob S. Þórarinsson, eigandi
sykurkarsins, segir þetta hafa verið
skemmtilega tilviljun. „Þetta er
erfðagripur úr fjölskyldu konunnar
minnar,“ segir hann og útskýrir að
ein fjögurra systra hafi verið
tengdamóðir hans. „Þessa skál [syk-
urkarið] fengu þær frá föður sínum,
sem fékk hana frá afa sínum,“ rekur
Jakob. Hann fékk þá hugdettu í gær
að renna í bæinn og láta skoða
þetta. „Við fórum reyndar með
fleiri muni en aðalmálið var þetta,“
segir hann. Sú sem skoðaði syk-
urkarið í Þjóðminjasafninu sagði
strax við Jakob að hún hefði séð
þetta munstur áður. Þá var hringt í
Elísabetu sem kom með rjómakönn-
una góðu til samanburðar. „Það
leynir sér ekki að þetta er frá sama
tíma og nákvæmlega eins,“ segir
Jakob. Þó sé ómögulegt að sanna að
karið og kannan séu samstæða. Jak-
ob býr á Suðurlandi, í Áskoti í Ása-
hreppi, og ljóst að langur vegur er
úr Aðalvík alla leið í Ásahrepp.
Munaskoðun í þriðja sinn
Lilja Árnadóttir, fagstjóri muna-
safns Þjóðminjasafnsins, segir að
landsmenn séu með ýmislegt í sín-
um fórum sem þá langar að vita
meira um, en í gær var boðið upp á
munaskoðun í þriðja sinn. Fólk fær
þá m.a. ráðleggingar um hvar það
getur leitað frekari heimilda um
gripina. Næst verður boðið upp á
munaskoðun í Þjóðminjasafninu í
mars.
„Algjörlega óvænt“
Sykurkar og rjómakanna sameinuð um stund í gær eftir 200
ára aðskilnað Ekki sannað að gripirnir séu úr samstæðu
Morgunblaðið/Ómar
Tvö eins Elísabet og Jakob bera saman gripi sína í Þjóðminjasafninu í gær. Kannan og karið eru samstæð.
Morgunblaðið/Ómar
Fallegir gripir Gripirnir eru ótrúlega heillegir, yfir 200 ára gamlir.
MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2008
Gosi
Borgarleikhúsinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Skrílslæti við Alþingi
Geir H. Haarde forsætisráðherra
segir ekkert athugavert við mótmæli
en gera verði greinarmun á frið-
samlegum mótmælum og skríls-
látum eins og urðu við Alþingishúsið
á laugardag. » Forsíða
Fastur í flotkví
Stór norskur rækjutogari situr
fastur í flotkví í Hafnarfjarðarhöfn
vegna deilna um tryggingar fyrir
eftirstöðvum viðgerðarkostnaðar.
Vélsmiðjan neitar að afhenda skipið
fyrr en viðgerðin hefur verið greidd
að fullu. » 2
Haldið í erlendu lánin
Ingólfur Ingólfsson fjármála-
ráðgjafi telur ekki ráðlegt fyrir fólk
að breyta lánum í erlendri mynt í
verðtryggð lán í íslenskum krónum.
Ástæðan er lágt gengi krónunnar og
horfur á mikilli verðbólgu á næst-
unni. » 4
Treystu á tæknina
Tuttugu menn köfnuðu og tuttugu
og tveir til viðbótar veiktust um borð
í rússneska kafbátnum Nerpa í Jap-
anshafi aðfaranótt sunnudags. Lík-
leg ástæða er of mikið traust á sjálf-
virka tækni og að of fáar gasgrímur
hafi verið um borð. » 15
SKOÐANIR»
Stakst.: Hringrás hugmyndafræði
Forystugreinar: Bjartsýni í svart-
nættinu | Ökufantar úr umferð
Ljósvaki: Sá sem gefur gæsahúð
UMRÆÐAN»
Fulla ferð áfram
Hvað er krútt?
Þjösnaskapur Evrópusambandsins
Hvenær er tímabært?
Heimilisprýði á jólunum
Aukið öryggi og minni … kostnaður
Leigan gengur upp í kaupverð
Grænar gersemar
FASTEIGNIR »
Heitast 7°C | Kaldast 1°C
N og NA 8-15 m/s og
rigning eða slydda
norðan til. Snjókoma
til landsins. Léttskýjað
sunnanlands. » 10
EVE Online-spil-
arar hittust nú um
helgina. Ekki var
laust við vænisýki á
milli félaga í ólíkum
bandalögum. » 35
TÖLVULEIKIR»
Vottar fyrir
vænisýki
FÓLK»
Flugan fór á tónleika hjá
Bubba. » 32
Páll Óskar byrjaði
mánaðarlöng hátíð-
arhöld á Nasa um
helgina, en leggur
síðan af stað út á
land. » 34
TÓNLIST»
Partý að
hætti Palla
TÓNLIST»
Lýsir hrifningu sinni á
Lay Low. » 38
TÓNLIST»
Bítlarnir og Sinatra með
þeim söluhæstu. » 36
Menning
VEÐUR»
1. Bætti á sig 20 kílóum
2. Björgum Bjarna
3. Vilja að Clarkson verði rekinn
4. Karlmaður í gæsluvarðhald
„ÉG VAR að æfa mig fyrir sam-
ræmda prófið í íslensku sem ég tók í
vor og ætlaði efnið bara sem upp-
rifjun,“ segir hin fjórtán ára Hulda
Vigdísardóttir. Hún gerði sér lítið
fyrir og samdi kennslubók í mál-
fræði og fyrir tiltækið hefur hún ver-
ið tilnefnd fyrir hönd Tjarnarskóla
til að hljóta viðurkenningu á degi ís-
lenskrar tungu 16. nóvember nk.
Kennslubókin fékk heitið Röndótt
og Hulda hefur samið málfræði-
kennsludisk sem fylgir bókinni.
Eins og gefur að skilja er Hulda
áhugasöm um íslensku. Hún er afar
ánægð með íslenskukennarann sinn,
Karen Ósk Úlfarsdóttur, og hrósar
henni í hástert. Hulda er nú í fjar-
námi við Fjölbraut í Ármúla. | 16
Fjórtán ára
kennslubók-
arhöfundur
Námsmær Hulda Vigdísardóttir.
ÍSLENSKUR piltur slasaðist alvar-
lega í mótorhjólaslysi í bænum Ny-
købing Mors á Norður-Jótlandi á
laugardaginn. Pilturinn er kominn úr
lífshættu en er haldið sofandi í önd-
unarvél.
Slysið varð þegar pilturinn, sem er
sextán ára gamall og búsettur í Ny-
købing Mors, var ásamt tveimur öðr-
um ungmennum á vespu sem ekið var
á kyrrstæðan bíl þegar sá sem hélt
um stýrið missti stjórn á vespunni í
beygju. Sá sem hélt um stýrið, piltur á
svipuðu reki, lést í slysinu. Stúlka,
sem var farþegi eins og íslenski pilt-
urinn, slasaðist alvarlega. Ekkert
þeirra var með hjálm eða í viðeigandi
hlífðarfatnaði.
Faðir piltsins er búsettur hér á
landi en flaug út til Danmerkur í gær-
morgun. Hann sagði við Morgunblað-
ið í gærkvöldi að öll fjölskylda piltsins
væri harmi slegin. Pilturinn væri þó
úr lífshættu og líðan hans stöðug.
thorbjorn@mbl.is
Slasaðist
alvarlega í
vespuslysi