Morgunblaðið - 12.11.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ENGAN bilbug er að finna á Vél- smiðjunni Héðni í Garðabæ sem nú er á lokaspretti við að reisa nýjar höfuðstöðvar við Hellnahraun í Hafnarfirði. Framkvæmdir hófust í sumar og Guðmundur S. Sveinsson framkvæmdastjóri segir banka- hrunið engin áhrif hafa á verkið. Fjármögnunin hafi verið tryggð, Héðinn hafi ávallt fylgt þeirri stefnu að ráðast ekki í stórar fjárfestingar nema geta staðið vel undir þeim. „Við keyrum þetta á þeirri áætlun sem við lögðum upp með og höldum okkur við hana. Framkvæmdir eru langt komnar og við stefnum á að flytja í Hafnarfjörðinn kringum jól og áramót,“ segir Guðmundur. Spurður um verkefnastöðu fyr- irtækisins segir Guðmundur hana góða, enn sem komið er. Um 100 manns starfa hjá Héðni, auk und- irverktaka, og hefur engum verið sagt upp síðan tók að halla undan fæti í íslensku efnahagslífi. Frekar hefur verið skortur á járniðn- aðarmönnum en hitt. Haldið verður í mannskapinn eins lengi og hægt er. Í nýju fréttabréfi Héðins er greint frá stórum samningi fyr- irtækisins við HB Granda um fram- kvæmdir við endurnýjun og stækk- un fiskmjölsverksmiðju Granda á Vopnafirði. Fyrsti áfangi verksins er þegar hafinn, þ.e. bygging ket- ilhúss og uppsetning á raf- skautakatli til gufuframleiðslu. Áform Granda ganga út á að flytja mjölsíló frá Reykjavík og end- urbyggja fyrir austan, byggja nýja mjölskemmu, afsogskerfi og ný flutningskerfi. Vélbúnaður verður einnig endurnýjaður að stórum hluta. Að sögn Guðmundar er hönn- un verksins að mestu lokið hjá Héð- insmönnum en endanleg framvinda ræðst af fjármögnun. Óvissa um framhaldið Þó að vel gangi í augnablikinu segir Guðmundur að Héðinn fari ekkert varhluta af óvissunni um framkvæmdir á næstunni. „Við óttumst að draga muni úr einhverjum verkum þegar líður á næsta ár. Við erum ekkert í annarri stöðu en aðrir hvað það varðar,“ segir Guðmundur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Héðinshús Í 86 ára sögu Héðins er vélsmiðjan að flytja höfuðstöðvar sínar í fjórða sinn, nú til Hafnarfjarðar, eða í Gjáhellu 4 í Hellnahrauni. Héðinshús rís í Hafnarfirði  Góð verkefnastaða hjá Vélsmiðjunni Héðni  Flytur í nýjar höfuðstöðvar um jól  HB Grandi samdi við Héðin um stækkun fiskmjölsverksmiðju á Vopnafirði Ljósmynd/ASK arkitektar Vopnafjörður Stækkuð og endurbætt fiskmjölsverksmiðja HB Granda á Vopnafirði hefur hér verið teiknuð inn á bæjarmyndina. Verkið er hafið. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is LÝSI hf. tekur árlega við um 2.800 tonnum af þorsk- og ufsalifur til lýs- isframleiðslunnar. Lifrin er um það bil 5% af þyngd hvers þorsks og kæmi öll lifur af þorskkvótanum í land væru þetta um 6.500 tonn. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins eru niðursuðuverksmiðjur að taka við um 800 tonnum af lifur og miðað við algengt kílóverð í kringum 30 krón- ur skiptir verðmæti þessarar afurð- ar því vel á annað hundrað milljóna króna. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýs- is, segir að fyrirtækið gæti vel tekið á móti meira magni af þorska- og ufsalifur. Slíkt hráefni fáist ekki nema hér og fyrirtækið verði að flytja inn lýsi úr öðrum fiskteg- undum eins og sardínum og ansjós- um. Katrín segir Lýsi hafa staðið fyrir átaki í lifrarsmölun og það hafi gefist vel. Við kvótaskerðingu nýti útgerðirnar aflann betur. Kjartan Ólafsson, verksmiðju- stjóri Lýsis í Þorlákshöfn, segist hafa orðið var við aukið framboð á lifur til bræðslu. Þannig sé verið að taka á móti mun meiri ufsalifur en á sama tíma í fyrra. Útgerðir séu greinilega að reyna að nýta þann afla betur sem kemur í land, ekki síst sökum kvótaniðurskurðar og efnahagsástæðna í landinu. „Menn eru aðeins farnir að hugsa um hve mikil verðmæti eru í lifur sem þeir henda úti á sjó. Bátar frá Þorlákshöfn og Grindavík hafa verið duglegastir í þessu. Eins og staðan er í dag finnst mér að skylda ætti all- ar útgerðir til að koma með lifrina í land. Þetta eru mikil verðmæti sem múkkinn fær að éta, í hvert skipti sem verið er að slægja. Þetta skiptir hundruðum milljóna króna. Við er- um bara að fá lítið brot af því sem er hent í sjóinn,“ segir Kjartan. Hann segir fyrirtækið vinna í því á hverjum degi að reyna að nýta bet- ur það hráefni sem fæst. Þannig sé allt þurrefni tekið úr lifrinni og búið til mjöl úr því. „Við erum ekki að henda neinu,“ segir Kjartan. Milljónaverðmæti til spillis  Lýsi gæti tekið við mun meira af þorskalifur  Útflutningsverðmæti upp á hundruð milljóna króna nýtast ekki  Ætti að skylda allar útgerðir til að koma með lifrina í land, segir verksmiðjustjóri Lýsis Morgunblaðið/Alfons Lifur Lýsi hf. fær m.a. lifur af bátum, frá fiskverkunum og slægingarþjón- ustum víða um land. Myndin er tekin í Slægingarþjónustunni í Ólafsvík. Talsmenn útgerða sem haft var samband við sögðu allt reynt til að nýta aflann betur, og undir það tekur Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynning- arfulltrúi LÍÚ. „Menn eru almennt að reyna að nýta öll þau verðmæti sem koma úr sjó, hvort sem það eru hausar, lifur eða slóg. En auðvit- að er það hjá okkur eins og öðr- um að örugglega má gera enn betur. Ég held samt að almennt séu menn að nýta lifrina eins og kostur er. Lifrin er hins vegar þannig hráefni, að hún þarf að komast skjótt til vinnslu ef hún á ekki að skemmast,“ segir Sig- urður ennfremur. Má gera enn betur FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÓVENJULEGA hreinskiptnar og opnar umræður fóru fram á fundi stjórnar Varðar, kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um stöðu flokksins í fyrradag. Á fundinum kom fram það sjón- armið að óbreytt skipan banka- stjórnar Seðla- bankans væri far- in að skaða flokkinn og nauð- synlegt væri að breyting yrði þar á. Marta Guð- jónsdóttir, formaður stjórnar Varð- ar, sagði að um reglulegan fund hefði verið að ræða og að hann hefði á engan hátt verið óvenjulegur. Hún vildi ekki tjá sig um efni fundarins, en sagði einungis að þar hefðu menn rætt um viðfangsefni flokksins á þessum erfiðu tímum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru umræður á fundinum hreinskiptnar og opnar. Fundarmenn lýstu áhyggjum af því að ekki lægi fyrir aðgerðaráætlun fyrir atvinnulífið í landinu. Þá kom fram það sjónarmið á fundinum að seta Davíðs Odds- sonar í stóli formanns bankastjórnar Seðlabankans væri farin að skaða flokkinn. Davíð er fyrrverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins og er af- ar óvenjulegt að persóna hans sé rædd með þessum hætti innan stofn- ana flokksins. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur verið að minnka í skoðanakönnunum og mældist einungis 22,3% í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Morgunblaðið um mánaðamótin. Um síðustu helgi kom þingflokkur sjálfstæðismanna til fundar þar sem stefna flokksins í Evrópumálum var rædd frá ýmsum hliðum. Engin sér- stök niðurstaða varð á fundinum. Ræddu stöðu Davíðs Davíð Oddsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.