Morgunblaðið - 12.11.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.11.2008, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 Gefandi Það er gefandi að gefa, þótt lítið sé. Næsta víst er að þessi fugl og fleiri hafi tekið brauðinu fagnandi sem vegfarandi gaf sér tíma til að gauka að þeim. Munum öll eftir fuglunum. Kristinn Friðrik Þór Guðmundsson | 11. nóv. Mistök … Þetta er auðvitað með eindæmum bæði klaufa- legt og illkvitnislegt hjá Bjarna Harðarsyni að hafa ætlað að koma af stað fréttaflutningi af óánægju framsóknarmanna með Val- gerði Sverrisdóttur, fyrrverandi banka- málaráðherra. Aðferðafræði Bjarna er í raun gamalkunn í pólitískri togstreitu manna, flokka á milli og innan flokka. Dreifa einhverju neikvæðu um óvininn! Hitt er annað mál að bréf framsókn- armannanna frá Varmahlíð er réttmæt gagnrýni á Valgerði og fjallar um hlut hennar í hruninu mikla. Og þar erum við að tala um miklu stærri og hroðalegri mistök en Bjarni greyið gerði sig sekan um. … Meira: lillo.blog.is Marinó G. Njálsson | 11. nóvember Aukalán LÍN ... Það er komin inn frétt á vef LÍN um aukalán fyrir námsmenn í sárri neyð skólaárið 2008-09. Þar segir: „Ef námsmaður er í sárri neyð vegna ófyrirsjáanlegrar röskunar á stöðu hans og högum frá því nám hófst í haust, getur hann sótt um sérstakt aukalán, sbr. heimild í gr. 4.9 í úthlutunarreglum sjóðsins. ...Ef slíkt aukalán verður samþykkt, þá verð- ur það greitt út með framfærsluláni.“ Ég veit ekki hvort ég á að taka þetta alvarlega. Námsmenn eru margir í al- varlegum og brýnum fjárhagsvanda, en það á að leysa hann á næsta ári! ... Meira: marinogn.blog.is Friðrik Hansen Guðmundsson | 11. nóv. Landflóttinn hafinn Þetta er skelfilegt. Nú erum við að byrja að missa allt okkar áræðn- asta fólk úr landi. Ekkert virðist vera í gangi hjá hinu opinbera nema meiri og meiri niðurskurður, nú síðast var verið að fresta framkvæmdum við Búð- arhálsvirkjun. Ætla menn að sigla án nokkurrar viðspyrnu beint inn í færeysku leiðina og missa heila kynslóð ungs barnafólks úr landi? Þið sem sitjið við stjórnvölinn, á ekkert að gera? Meira: fhg.blog.is ÞANN 31. október skrifaði ég grein hér í blaðið þar sem ég lagði til að bæði stuðnings- menn og andstæðingar aðildar Íslands að ESB og myntbandalagi Evr- ópu sameinuðust um það markmið að Ísland uppfyllti hin svoköll- uðu Maastricht- skilyrði um efnahags- legan stöðugleika og hæfust handa við að móta og skilgreina leiðir að því markmiði. Benti ég á að þótt menn greindi á um afstöðuna í Evrópu- málum væri öllum ljóst að það væri lífsspursmál fyrir íslenskt efnahags- líf að ná stöðugleika og Maastricht- skilyrðin fælu í sér skynsamlegar viðmiðanir í því sambandi. Sjálfsagt væri og nauðsynlegt að Evrópu- umræðan héldi áfram, kostir og gall- ar væru ræddir fordómalaust, en meira vit væri í að hefja þegar vinnu við að ná þeim markmiðum sem við ættum sameiginleg heldur en að knýja fram á næstunni niðurstöðu í þeim málum sem sundra okkur. Í Reykjavíkurbréfi blaðsins frá 1. nóvember er vikið að þessum sjón- armiðum mínum og þrenns konar rök færð fram gegn þeim. Í fyrsta er fullyrt, án frekari skýringa, að tími biðleikja á þessu sviði sé liðinn eftir fjármálahrunið nú á haustdögum. Í öðru lagi er nefnt að aðildarumsókn myndi fela í sér sterkari skuldbind- ingu til að ná Maastricht-skilyrð- unum en ella og að með aðild að ESB fengi Ísland stuðning ESB og Seðla- banka Evrópu til að halda genginu stöðugu en utan sambandsins sé slík- an stuðning ekki að hafa. Í þriðja lagi er nefnt í Reykjavíkurbréfinu að þar sem mikill stuðningur sé við upptöku evru í skoðanakönnunum sé í sjálfu sér ekki ástæða til að hafa áhyggjur af klofningi þjóðarinnar í andstæðar fylkingar í þessum efnum. Evra í fyrsta lagi eftir 4 til 6 ár Um öll þessi atriði má auðvitað hafa langt mál. Höfundi Reykjavík- urbréfs er að sjálfsögðu velkomið að kalla tillögu mína bið- leik. Hún mótast hins vegar af þeirri stað- reynd að hvorki inn- ganga í ESB né upp- taka evrunnar sem gjaldmiðils verður að veruleika án verulegs aðdraganda – þar er um að ræða ferli sem óhjákvæmilega tekur nokkur ár. Hér innan- lands þarf auðvitað fyrst að útkljá marg- víslegar pólitískar og stjórnskipulegar spurningar. Það þarf að ákveða hvernig staðið yrði að aðildarumsókn – ætti það að vera ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnar eða ætti að fara fram um það sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla eins og margir hafa lagt til að undanförnu? Hvernig þyrfti að breyta stjórn- arskránni til að ESB-aðild yrði möguleg? Hver ættu samningsmark- mið okkar að vera, svo það helsta sé nefnt. Þá þyrfti auðvitað líka að klára sjálfa samningana við ESB, sem óhjákvæmilega tæki líka nokkurn tíma. Þann tíma má auðvitað stytta með því að ganga skilmálalítið eða skilmálalaust að kröfum sambands- ins, en ólíklegt verður að teljast að um slíka nálgun næðist mikil sam- staða hér innanlands. Þá eru allir sammála um að um ESB-aðild verði ekki tekin endanleg ákvörðun fyrr en lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. En jafnvel að samningum sam- þykktum og undirrituðum væri eftir formlegt ferli innan ESB, sem líka tæki tíma, ekki síst vegna þess að að- ildarsamningur þyrfti staðfestingu á þjóðþingum allra aðildarríkjanna áð- ur en hann tæki gildi. Og þá fyrst, að öllu þessu loknu, tæki við formlegur aðlögunartími að myntbandalaginu, sem í stysta lagi tekur tvö ár miðað við regluverk ESB, en hætt er við að verði lengri í ljósi þess hversu langt við eigum í land með að uppfylla hin margnefndu Maastricht-skilyrði miðað við stöðu efnahagsmála í dag. Ég get ekki frekar en aðrir fullyrt hvenær við gætum í fyrsta lagi tekið upp evruna í ljósi allra þessara stað- reynda. Ýmsir hafa nefnt 4 til 6 ár og verður það að teljast frekar bjart- sýnt mat, sem byggir á því að engir sérstakir hnökrar verði á ferlinu. Það má auðvitað kalla tillögu mína biðleik, en með sama hætti mætti kalla flesta leiki biðleiki í ljósi þess hversu langt er þar til upptaka evr- unnar væri möguleg. Mun ESB-aðild sem slík stuðla að stöðugleika? Vissulega má færa ákveðin rök fyrir því að aðildin sem slík og form- legt aðlögunarferli að stöðugleika- skilyrðum myntbandalagins myndi auka aðhald að stjórnvöldum. Á hitt ber að líta, að reynsla annarra þjóða er mjög misjöfn í þessu sambandi. Þar má benda á að Ungverjaland og Eystrasaltsríkin eru enn mjög langt frá því að uppfylla þessi skilyrði, þrátt fyrir að þau hafi verið aðilar að ESB í fjögur ár og allan þann tíma stefnt að því að taka upp evruna. Í opinberum gögnum frá Ungverja- landi kemur fram að þarlend stjórn- völd telji að enn geti liðið 4 til 6 ár áð- ur en af gjaldmiðilsbreytingunni geti orðið. Og benda má á að staða þeirra innan ESB megnaði ekki að forða þeim frá fjármálakreppu, ekki ólíkri þeirri sem við búum við, og stuðn- ingur Seðlabanka Evrópu við Ung- verja kom ekki til sögunnar fyrr en nú fyrir fáeinum dögum, eða um sama leyti og þeir voru að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um stuðn- ing með sama hætti og við erum að vinna að þessa dagana. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að það er hæpið að fullyrða, eins og margir ESB-sinnar gera, að ESB-aðild, eða jafnvel bara yfirlýsing um að sækja um ESB-aðild, fæli í sér einhverja sérstaka vörn fyrir íslenskt efna- hagslíf. Ég er hræddur um að slík viðhorf mótist meira af óskhyggju en raunsæi. Óhjákvæmileg átök Þriðja atriðið, sem höfundur Reykjavíkurbréfs víkur að í skrifum sínum, er að engin ástæða sé til að hafa áhyggjur af klofningi þjóð- arinnar í þessum málum ef mikill meirihluti þjóðarinnar vilji aðild að ESB og upptöku evru. Meirihlutinn eigi auðvitað að ráða og minnihlutinn verði að sætta sig við þá niðurstöðu. Þetta er auðvitað rétt svo langt sem það nær. Bréfritari horfir hins vegar fram hjá því að á leiðinni til aðildar og evru þarf að taka margar ákvarð- anir, sem óhjákvæmilega verða um- deildar og munu skipta þjóðinni í andstæðar fylkingar. Það þarf engan sérstakan spámann til að sjá fyrir þær deilur, sem munu verða um ákvörðun um aðildarumsókn, ákvörðun um samningsmarkmið, breytingu á stjórnarskránni til að heimila fullveldisframsal og hvað þá hina endanlegu ákvörðun um aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Engin skref verða tekin á þessari leið nema að undangengnum miklum umræðum og átökum. Það er áreiðanlega rétt mat að við Íslendingar getum ekki vikist undan því að fara í gegnum þessar umræð- ur á næstu árum. Hér er um að ræða stórmál, sem auðvitað verður að leiða til lykta fyrr eða síðar. Þegar kemur að því að útkljá ágreininginn munu þessi átök yfirskyggja öll önn- ur viðfangsefni á vettvangi stjórn- málanna. Ekki er við öðru að búast enda er um að ræða ákvarðanir sem verða afdrifaríkar fyrir allt þjóðfé- lagið um langa framtíð. Verði tekin ákvörðun um ESB-aðild er ljóst að þar er ekki um að ræða neina bráða- birgðaákvörðun til að mæta til- teknum erfiðleikum eða tímabundn- um vanda. Slíkri ákvörðun er ætlað að standa um áratugaskeið. Spurn- ingin sem ég velti fyrir mér er sú, hvort þessar deilur séu brýnasta verkefnið í dag og á næstu mánuðum eða hvort ekki væri nær að við reyndum að sameinast um þau við- fangsefni, sem við blasa í efnahagslífi þjóðarinnar og krefjast úrlausnar þegar í stað. Ég taldi – og tel enn – að það geti verið raunhæft fyrir okk- ur að ná breiðri samstöðu um að vinna að því að uppfylla Maastricht- skilyrðin, enda miða þau óumdeil- anlega að þeim efnahagslega stöð- ugleika, sem enginn getur efast um að við þurfum sárlega á að halda. Eftir Birgi Ármannsson »… væri ekki nær að við reyndum að sam- einast um þau viðfangs- efni, sem við blasa í efnahagslífi þjóðarinnar og krefjast úrlausnar þegar í stað. Birgi Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. ESB og evra – óskhyggja og raunveruleiki BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.