Morgunblaðið - 12.11.2008, Page 26

Morgunblaðið - 12.11.2008, Page 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 RÁÐHERRAR hafa allir rætt mikilvægi þess að verja almenn- ing og fyrirtækin í landinu eftir megni. Til þess að það megi verða verður að styrkja stöðu sveitarfélaganna í landinu. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Sveitarfélögin annast stóran hluta opinberrar þjónustu í þágu velferðar og menntunar á Íslandi. Þau eru hluti hins opinbera ekki síður en rík- ið og gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í þeirri fjármálakreppu sem nú ríður yfir samfélagið. Sveit- arfélögin standa íbúum sínum næst, sinna börnunum, menntuninni og velferðinni. Sveitarfélögin hafa nú um langt skeið átt í miklum örðugleikum vegna veikra tekjustofna og mikilla verkefna. Er nú svo komið að sum þeirra eiga erfitt með að sinna lög- bundnum verkefnum. Þótt jöfnunarsjóði sé ætlað að jafna möguleika sveitarfélaganna er óvíst að hann muni duga, enda byggður á útsvarstekjum sem eiga eftir að rýrna verulega á árinu 2009. Aukaframlag til jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2007 og 2008 upp á 1400 milljónir hefur ráð- ið úrslitum fyrir þau sveitarfélög sem verst stóðu og gert þeim kleift að sinna sínum verkefnum. Nú er staðan sú að viðbót- arframlagið er ekki í hendi, jöfn- unarsjóðsframlagið verður rýrara og engin aðgerðaáætlun hefur litið dags- ins ljós frá ríkisstjórninni eða Krist- jáni Möller ráðherra sveitarstjórn- armála um það með hvaða hætti íslenskum sveitarfélögum á að vera unnt að sinna sínum hluta af þjónustu við almenning á krepputímum. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að verja almenning og fyrirtækin í landinu án þess að leggja fram metnaðarfulla áætlun í þágu sveitarfélaganna í land- inu? Á meðan engum spurningum er Sveitarfélögunum haldið í myrkrinu Svandís Svav- arsdóttir vill styrkja stöðu sveit- arfélaganna Svandís Svavarsdóttir NÝLEGA sat ég málþing um fjöl- skyldumál á Íslandi sem félagsmálaráðu- neytið stóð fyrir. Yf- irskriftin var sú sem hér er notuð og þar bar margt á góma. Nið- urstöður rannsókna voru kynntar, fróðleg erindi flutt af sérfróðum aðilum. Heildarmynd málþingsins var skýr og skilaði sér til málþingsgesta. Hafi aðstandendur málþingsins þökk fyr- ir. Þegar rætt er um hagsmuni barna skiptir máli hvaða skilningur er lagður í þá. Eru þetta raunveru- lega hagsmunir barna eða eru þetta hagsmunir foreldra eða kannski hagsmunir ríkisins. Þessu var velt upp á málþinginu og réttilega bent á að mikilvægt væri að skilgreina þetta ýt- arlega. Mig langar að bæta við umræðuna. Ég legg áherslu á að fjalla um hagsmuni barna. Skólinn er vinnu- staður barna og ung- menna og þar eyða þau gríðarlega miklum tíma. Verkefnin sem þau fást við eru sniðin að aldri og þroska og vinnunni stýra kenn- arar sem eru sérmenntaðir til þess. Aðra þjónustu eins og heilsugæslu veita hjúkrunarfræðingar og náms- ráðgjöf veita námsráðgjafar. Mik- ilvægt er talið að þjónustan sé í nær- umhverfi barnsins og að barnið geti leitað til hjúkrunarfræðings og námsráðgjafa í sínum skóla og þurfi ekki að fara út fyrir hann. Er aðeins verið að gæta hagsmuna nemandans en ekki barnsins? Lítum nánar á persónulega ráðgjöf við nemendur og hvað hún merkir. Persónuleg ráðgjöf við nemendur þarf að vera aðgengileg og trygg ef gæta á öryggis barnsins. Hún þarf að vera í nærumhverfi þess og henni þarf að sinna af fagmennsku og ábyrgð. Við erum samábyrg þegar kemur að börnum eins og Gunnar Hersveinn, einn af fyrirlesurum mál- þingsins, sem ég vitnaði til í upphafi benti réttilega á. Með persónulegri ráðgjöf á ég við samskiptaerfiðleika á heimilum, einelti, einmanaleika, fá- tækt, sjálfsvígshugleiðingar, sifja- spell, ofbeldi, nauðganir, þunglyndi og kvíða svo fátt eitt sé nefnt. Eftir að hafa komið að þróun náms- ráðgjafar í skólum landsins frá upp- hafi finnst mér ég hafa vit á þessum málum. Það er algjör forsenda fyrir heilbrigði barns að litið sé á það sem heilsteypta manneskju en ekki sem parta sem raðað hefur verið saman á viðurkenndan hátt. Persónuleg ráð- gjöf við nemendur vó þyngst þegar ég starfaði að þróunarvinnu fyrir tvo menntamálaráðherra; Svavar Gests- son og Björn Bjarnason og einnig í mínu daglega starfi sem náms- ráðgjafi við Menntaskólann við Sund. Í dag starfa ég sjálfstætt og ekkert hefur breyst. Ég skilaði skýrslum á sínum tíma sem sýndu þetta glöggt. Þrátt fyrir það var lítið lagt upp úr persónulegu ráðgjöfinni og talið réttara að beina börnunum út fyrir nærumhverfið til sérfræð- inga úti í bæ. Hvert barn er sérstakt barn. Að- stæður barna eru mjög misjafnar eins og glögglega kom fram á áð- urnefndu málþingi. Börn mæta ólíku viðmóti foreldra, kennara og vina. Þau eru ólík að upplagi og aðstæður hafa mótað þau á misjafnan hátt en öll eru þau börn fyrst og fremst sem eiga skilyrðislausan rétt á umhyggju og vernd. Á þessum síðustu og verstu tímum finnst mér nauðsyn- legt að benda á þetta og kjörið tæki- færi þegar félagsmálaráðherra Jó- hanna Sigurðardóttir beitir sér fyrir umræðunni um hagsmuni barna. Hvað er þá nærtækara en líta í eigin barm og skoða það sem þar hefur safnast fyrir? Í skólanum á barnið að hafa aðgengi að faglegum ráðgjafa sem veitir því stuðning og vernd með því að hlusta og hafa afskipti af mál- um sem barnið ræður ekki sjálft við. Þetta er barnavernd. Samvinna og stuðningur við for- eldra skiptir miklu máli í barna- vernd. Í þróunarstarfi og öllu starfi mínu með börnum og ungmennum hefur mér veist auðvelt að hafa sam- vinnu við foreldra og oftar en ekki bjóðast foreldrum bjargir sem þeim voru ókunnar. Stundum eru að- stæður barns óviðunandi og þá skiptir máli að barnið eigi sér tals- mann sem getur greint vandann á réttan hátt. Oftar en ekki eru per- sónulegar aðstæður barns ein af meginhindrunum fyrir eðlilegu námsgengi þess og þá skiptir grein- ing á vandanum meginmáli. Þetta er barnavernd. Álag á kennara er gríð- arlegt í dag. Ég hef veitt kennurum handleiðslu í starfi og finn hve stutt Höfum við hagsmuni barna að leiðarljósi? Guðrún H. Sederholm fjallar um hagsmuni barna og fjölskyldumál » Til þess að gæta hagsmuna barna af ábyrgð verður skólinn að bjóða upp á heild- stæða nærþjónustu sem gagnast barninu af- dráttarlaust. Guðrún H. Sederholm ÞJÓÐARLEIÐ- TOGAR sem nú safn- ast saman til fundar í Washington ættu að hafa í huga að við tvær kreppur er að etja. Til skamms tíma litið er fjárhagskreppan sú sem er mest aðkall- andi, en þegar til lengri tíma er litið eru loftslagsbreytingar alvarlegri kreppa. Fjárhagskreppan krefst lausna en má ekki vera skálkaskjól til að takast ekki á við síðarnefndu krepp- una. Þvert á móti er hún tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi. Höldum okkur að sinni við hagnýt efnahagsleg rök. Hag- vöxtur í heiminum er að minnka. Við munum sennilega hafa minna fé handa á milli til að takast á við sífellt fleiri hnattræn vandamál. Hvaða skref getum við þá stigið til þess að skapa störf og örva hag- vöxt? Hvernig getum við tryggt orkuframboð á viðráðanlegu verði? Hvað getum við gert til þess að ein- angra fjármálakerfið frá áföllum og bólum sem springa, með það fyrir augum að allar þjóðir geti notið þróunar og efnahagslegs öryggis? Svarið er grænt hagkerfi Svarið er að leita sameiginlegra lausna á þeim alvarlega vanda sem blasir við okkur. Og þegar um er að ræða tvö alvarlegustu vandamálin – fjármálakreppuna og loftslags- breytingar er aðeins eitt svar: grænt hagkerfi. Vísindamenn eru á einu máli: til þess að takast á við loftslagsbreytingar þurfum við græna byltingu, róttæka breytingu á því hvernig við knýjum samfélög okkar. Hagfræðingar eru líka sam- mála þessu: helsti vaxtarbroddur hagkerfis heimsins er endurnýj- anleg orka. Þar er verið að skapa störf framtíðarinnar og þar er ver- ið að brydda upp á þeim tæknilegu nýjungum sem munu skapa næstu efnahagslegu umbreytingu heims- ins. Mikilvægur fundur í Poznan Vissulega er leiðtogafundurinn um fjárhagskreppuna í Washington mikilvægur. En við göngumst ekki síður undir prófraun í byrjun des- ember, þegar ríki heims koma sam- an til fundar í Poznan í Póllandi í næstu hrinu loftslagsviðræðna á vegum Sameinuðu þjóðanna. Fund- urinn er lokaæfingin fyrir stóru samningalotuna á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn í desember að ári. Þar á að liggja fyrir heildstæður og metnaðarfullur loftslagssáttmáli sem allar þjóðir geta sætt sig við. Fjármögnun mun skipta sköpum. Ef þróunarríkjum er ekki tryggt fjármagn og tæknikunnátta til að „gerast græn“ munum við ekki geta barist á skilvirkan hátt við loftslags- breytingar. Umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) áætlar að fjár- festingar í orku sem losar engar gróðurhúsalofttegundir muni nema 1,9 billjónum (milljónum milljóna) bandaríkjadala árið 2020. Þetta er talsverður hluti samanlagðrar þjóðarframleiðslu ríkja heims. Nærri tvær milljónir manna um allan heim starfa í nýja vind- og sólarorkugeiranum, þar af helm- ingur í Kína. Nærri ein milljón starfa er sköpuð í Brasilíu við framleiðslu lífræns eldsneytis. Bú- ist er við að fjárfestingar í um- hverfistækni fjórfaldist í Þýska- landi á næstu árum og nemi 16 prósentum af iðnaðarframleiðslu árið 2030 og skapi fleirum atvinnu en bílaiðnaðurinn. Við þurfum hvorki að bíða eftir nýrri tækni, né hafa of þungar áhyggjur af kostn- aði við að grípa til aðgerða. Rann- sóknir benda til að Bandaríkin gætu dregið verulega úr kol- efnalosun sinni með litlum sem engum kostnaði og notast við fyr- irliggjandi tækni. Sem dæmi má nefna að Danmörk hefur fjárfest umtalsvert í grænum hagvexti. Frá árinu 1980 hefur þjóðarframleiðsla aukist um 78% en orkunotkun hef- ur aukist óverulega. Þessi orku- sparnaður kemur fram í auknum hagnaði fyrirtækja. Einnig má nefna að evrópsk fyrirtæki í græna geiranum njóta frumherjastarfs síns og hafa um þriðjungs mark- aðshlutdeild í umhverfistækni. Með réttri stefnu og fjárhagslegri hvatningu – innan alþjóðlegs ramma – getum við stýrt hagvext- inum í kolefnasnauða átt. Með rétt- um stefnumiðum og fjárhagslegri hvatningu getum við tryggt að jafnt þróunarríki sem þróuð ríki leggi sitt af mörkum í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Hver muna finna sína leið að markinu og eng- inn ætti að þurfa að gefa eftir rétt þegna sinna til þróunar og hag- sældar. Margar leiðir að markinu Í þessu samhengi skulum við við- urkenna að margar leiðir geta legið til Rómar. Á fundunum í Poznan og síðar í Kaupmannahöfn munu marg- ir tala fyrir skýrum bindandi los- unarhámörkum. Aðrir munu kjósa sjálfviljugar takmarkanir. Enn aðrir munu ræða um kosti og galla kol- efnismarkaða annars vegar og skattlagningar hins vegar. Margir munu hvetja til þess að stefnt verði að því að minnka eyðingu skóga sem talin er valda fimmtungi losunar gróðurhúsalofttegunda. En því mið- ur erum við ekki í aðstöðu til að velja og hafna. Við þurfum að sækja fram á öllum vígstöðvum. Fjár- málakreppan hreyfir við okkur. Nýrrar hugsunar er þörf. Við þurf- um frumlegar lausnir sem taka tillit til veigameiri hnattrænna áskorana sem við stöndum frammi fyrir. Fjár- málakreppan er ekki skálkaskjól sem gefur okkur tækifæri til að slá því á frest sem nauðsynlegt er að gera. Við megum engan tíma missa. Kreppa er tækifæri Ban Ki-moon, Susilo Bambang Yudho- yono, Donald Tusk og Anders Fogh Rasmussen skrifa í tilefni af alþjóðlegri fjármálakreppu »Helsti vaxtarbrodd- ur hagkerfis heims- ins er endurnýjanleg orka. Þar er verið að skapa störf framtíð- arinnar. Ban Ki-moon Höfundar eru framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, forseti Indóne- síu, forsætisráðherra Póllands og for- sætisráðherra Danmerkur. Anders Fogh Rasmussen Susilo Bambang Yudhoyono Donald Tusk SÚ ÁGÆTA Kol- brún Bergþórsdóttir, blaðamaður Morg- unblaðsins, skrifaði á dögunum að allir for- menn stjórnmálaflokk- anna utan einn væru einangraðir í Evrópu- afstöðu sinni; geð- vonskulegir Geir Haarde, Guðni Ágústsson og Stein- grímur J. Sigfússon vildu gefa þá mynd af sér að þeir væru engar dæg- urlufsur. Þrjóska þeirra og þver- móðska jaðraði við að vera landi og þjóð hættuleg. Þjóðin vilji vera þátt- takandi í samfélagi Evrópuríkja og eignast gjaldmiðil sem hægt sé að treysta. Þjóðin skilji þá ekki og þeir ekki þjóðina. Þeir verði að snúa af braut áður en þjóðin verði endanlega gjaldþrota. Það er nú svo. Þarna hefur blaðamaður talað. Má teljast furðulegt að leiðtogarnir þrír sjái ekki villu síns vegar. Í skjóli auðmanna Með nýjum ritstjóra Morgunblaðsins kúventi blaðið í afstöðu sinni til aðildar Íslands að Evr- ópu. Þar með styðja allir helstu fjölmiðlar þjóð- arinnar í einkaeigu aðild að Evrópusambandinu. Allir sitja ritstjórarnir í skjóli íslenskra auðmanna sem stefndu þjóðinni í stórkostlegan háska. Rit- stjóri Morgunblaðsins gekk hiklaust til verks eftir skipan sína og gekkst í um- fangsmiklar hreinsanir; fínum og flott- um blaðamönnum var hent út eða ofan í kjallara líkt og ónýtum mublum en Evr- ópusinnum raðað á jötuna. Meira að segja Sigmund var settur í gálgann til þess að knýja fram hina nýju stefnu. Þetta var bylting af gamla skólanum. Fjölmiðlar harðsvíruð málgögn Leiðtogarnir sækja umboð sitt til þjóðarinnar. Blaðamaður Morg- unblaðsins sækir umboð sitt til ritstjóra síns sem sækir umboð sitt til eiganda Morgunblaðsins. Sá sem setti ritstjór- Af dægurlufsum og þjóð- hættulegum mönnum Hallur Hallsson skrifar um blaða- mennsku Hallur Hallsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.