Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 31

Morgunblaðið - 12.11.2008, Side 31
Umræðan 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2008 FYRIR rúmu ári keypti ný- stofnað fyrirtæki í bygging- ariðnaði nýtt iðnaðarhúsnæði sem kostaði 135 milljónir. Tók til þess myntkörfulán skv. ráðgjöf þjónustufulltrúa í við- skiptabanka sínum og sem að bestu manna yfirsýn þótti álit- legasta aðferð til lántöku þá, upphæð í ís- lenskum krónum 110 milljónir. Veð í hinni keyptu eign sjálfri. Nú er lánsupphæðin komin í 240 milljónir og fyrirtækið – ja, ekki verkefnalaust heldur getur ekki sinnt verkefnum af því það fær ekki a) lán til að kaupa hráefni til reksturs- ins b) yfirfærðan gjaldeyri til hins sama. Gjaldþrot blasir við. Bankinn verður að ganga að veðinu. Eignin sjálf er lítt seljanleg nú (vegna skorts á eftirspurn) en þó hún stæði undir upprunalegu verði vantar samt 130 milljónir upp á að veðið standi undir skuldarupphæðinni. Þessi mismunur fellur á bankann sem beint tap hans. Fyrirtækið er ónýtt og gjaldþrota. Eini ljósi punkturinn að ef eigandinn er ekki sjálf- ur gjaldþrota og heldur heimili sínu getur hann ef til vill stofnað nýtt fyrirtæki á ann- arri kennitölu og haldið áfram að lifa mann- sæmandi lífi. Fjölskylduhliðin enn verri Ennþá verra er sá hluti þessa lánafyr- irkomulags sem lýtur að fjölskyldum lands- ins. Dæmi: Hjón á fertugsaldri með tvö börn keyptu fyrir rúmu ári íbúð fyrir 31 milljón. Tóku til þess 70% myntkörfulán að fengnu greiðslumati, í samráði við þjónustufulltrúa í bankanum sem bestu kjörin bauð og sem að bestu manna yfirsýn þótti álitlegasta aðferð til lántöku þá. Veð í hinni keyptu eign sjálfri. Lánsupphæðin upprunalega tæpar 22 millj- ónir króna. Stendur núna í rúmum 48 millj- ónum. Þessi hjón geta ekki skipt um kennitölu og byrjað einfaldlega á núlli. Við þeim blasir ekkert annað en persónulegt gjaldþrot og þau mega þá ekkert eiga og nánast ekkert gera næstu sjö árin. Spurning hvað þau geta síðan gert, með þennan fjármálaferil á bak- inu. Þau geta ekki skipt um kennitölu og lát- ið sem ekkert sé. Bankinn hins vegar gengur að veðinu, íbúðinni, og lætur að öllum líkindum bera fjölskylduna út. Situr uppi með íbúðina sem hugsanlega selst einhvern tíma á næstu misserum. Verð hennar hefur lækkað nú þegar en þó að fyrir hana fengist svipuð krónutala og í fyrra vantar bankann samt 26 milljónir miðað við daginn í dag til að fá lán- ið að fullu greitt. Það er fyrirsjánlega hans tap. Þessi tvö dæmi eru tekin bara úr því um- hverfi sem ég þekki til sjálfur. Fullvíst að til- færa mætti um þessar mundir þúsundir ef ekki tugþúsundir svona dæma. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks ber ábyrgð á þessu ástandi og verður að greiða úr því. Ef hún gerir það ekki verða afleiðing- arnar fyrir almenning í landinu, og kannski sérstaklega litla manninn sem a.m.k. sumir ráðherrar þessarar ríkisstjórnar nefna stund- um með snert af klökkva í röddinni, ekkert annað en persónulegt gjaldþrot með tilheyr- andi alvarlegum afleiðingum og allsleysi, andlega sem veraldlega. Ríkisstjórninni dug- ar ekki að vísa málinu til bankanna með til- mælum um úrbætur eins og tímabundna frystingu afborgana. Hún verður að bjarga þessu fólki ef hún ætlar að bjarga sjálfri sér. Eitt það aumasta sem hún gæti gert væri að slíta stjórnarsamstarfinu og láta allt reka á reiðanum með þeirri óreiðu og stertabendu sem af því hlytist. Bankarnir tapa hvernig sem fer Það er deginum ljósara að bankar eru ekki og hafa aldrei verið góðgerðarstofnanir, ekki heldur þó að þeir séu nú aftur ríkisreknir. Eðli þeirra stofnana samkvæmt og ef ekkert verður að gert verða skuldirnar einfaldlega gjaldfelldar með þeim afarkostum sem því fylgja og því tapi sem bankarnir óhjákvæmi- lega hljóta að verða að sýna samkvæmt því. Lánþegarnir sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér verða reknir út á gaddinn með börn og buru, stimplaðir vanskilamenn og óreiðufólk. Hér verða stjórnvöld að taka myndarlega á með tilskipun um virka skuldbreytingu og niðurfellingu hluta skuldanna þannig að lánin séu ekki himinhátt yfir því veði sem að baki þeim stendur. En leyfa lántakendum að koma niður standandi – alveg skilyrðislaust þar sem íbúðarhúsnæði, eitt af frumþörfum mannsins, er að veði, fyrir utan mannorð og persónulegan fjárhag lántakandans og fjöl- skyldu hans. Verði það ekki gert er þar með skotið rót- um undir nýja öreigastétt sem samanstendur einkum af vel menntuðu, dugmiklu og ábyrgu fólki. Ég get lofað núverandi stjórn- mála- og stjórnarflokkum því að það fólk mun ekki taka niðurlægingu sinni þegjandi og aðgerðalaust. Sigurður Hreiðar Hreiðarsson sjálfstætt starfandi blaðamaður. Hvað á að gera við myntkörfulánin? ÞAÐ er stundum sagt að þrengingar og þungir tímar sýni úr hverju manneskjan sé gerð. Við skulum ekki gera lítið úr hinum hæga hversdagsleika og öllu sem í honum býr, en það er alveg rétt að erfiðleikar draga ýmislegt fram í dags- ljósið. Og kannski reynir ekki verulega á gjaf- mildi okkar, góðsemd og reisn fyrr en þrengir að okkur sjálfum. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar grein í Morgunblaðið undir yfirskriftinni, Hverjir eiga að bera byrðarnar? Sigurður Kári vill skera niður útgjöld ríkisins á sem flestum stöðum, það hefur hann að vísu alltaf viljað, og ákaflega. En ástæðan fyrir þessum greinarstúf mínum er eftirfarandi fullyrðing Sigurðar Kára: „Ríki sem þarf á aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóð- inum að halda er ekki aflögufært um að veita öðrum ríkjum þróunaraðstoð.“ Mér finnst satt að segja ekki mikil mannúð í þessari setningu. Ég veit að það eru erfiðir tímar framundan hjá okkur. Mjög erfiðir, þrengingar, atvinnuleysi og hið dimma von- leysi sem gjarnan fylgir slíkum tímum. Við þurfum að skera ýmislegt niður, en við munum þó tæplega svelta, hvað þá deyja úr hungri. Við munum ekki krókna úr kulda, deyja úr vatns- skorti, eða vegna algjörs skorts á læknisþjón- ustu. Eða veit Sigurður Kári ekki hvernig ástandið er í sumum þróunarríkjanna? Veit hann ekki að þar deyr fólk úr örbirgð, þar deyja börn úr sjúkdómum sem ætti að vera sáraeinfalt að vinnu bug á? Því viti Sigurður Kári þetta, hvaðan kemur honum þá kuldinn að skrifa svona setningu: „Ríki sem þarf á aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðinum að halda er ekki aflögufært um að veita öðrum ríkjum þróun- araðstoð.“ Þrátt fyrir að við höfum stundum kallað okk- ur ríkustu þjóð í heimi, hefur framlag Íslands til þróunarríkja ætíð verið langt undir því sem samið hefur verið um á alþjóðavettvangi. Sú staðreynd er fleinn í samvisku okkar. Og nú vill Sigurður Kári ganga skrefi lengra og skera framlagið alveg af, ekki leggja krónu fram, ekki eina evru. Það þarf að spara á Íslandi, al- veg hárrétt, en mikið andskoti megum við vera langt leidd ef við hættum að aðstoða þá sem ekkert eiga, sem örbirgð og dauði vofir yfir. Eins og flestir Íslendingar er Sigurður Kári umkringdur þægindum, á fullan ísskáp af mat, hann á góðan bíl, gengur í vönduðum fötum, efnahagsþrenginar munu ekki breyta þessu, og samt segist hann ekki hafa efni á því að aðstoða fólk sem er að deyja úr hungri. Sumir eru því miður með kuldapoll í hjarta, sagði afi minn einu sinni við mig, ég veit það ekki. Ég veit það bara að við berum siðferðislega ábyrgð í þess- um heimi, og ég veit að heimurinn er ekki bara Ísland. Ég veit að líf fólks í Afríku og víðar reiðir sig á þróunaraðstoð frá þeim sem standa betur. Það er ekkert í veröldinni eins dýrmætt og lífið, og ef við viljum geta horft áfram fram- an í heiminn, þá hjálpum við þessu fólki áfram. Framundan eru tímar þrenginga, og á slíkum tímum getum við sýnt heiminum reisn okkar, og hjartalag. Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur. Með kuldapoll í hjarta FRÉTTIRNAR valda mér hnút í maga og óbragði í munni. Hver ætli svíki okkur næst, upp um hvaða svik er verið að koma, hver laug hverju, hver sagði ekki neitt, hvað hækkaði í dag, hver er farinn á hausinn og hverjir misstu vinnuna í dag? Við erum beðin um þolinmæði á meðan fjölskyldur og fyrirtæki fara í þrot og ný- og ófædd börn okkar eiga að taka á sig skuldir hinna svokölluðu útrásarvíkinga. Hugsanlega hefðum við átt að hugsa um merkingu orðsins „víkingur“ meðan á þessu góðæri stóð líkt og einn vinur minn benti réttilega á. Víkingur var nefnilega maður sem ekki vildi una í sínu landi og þeim reglum sem þar áttu við. Heldur fór hann og kannaði heiminn með gripdeildum og öðrum níðingshætti. Kom heim ríkur og lagði örmagna alþýðuna undir sig í krafti fjármagns sem hann „vann“ sér inn annars staðar. Almenningur fær ekki upplýsingar nema frá sjálfskipuðum álitsgjöfum og ráð- gjöfum sem benda á hugsanlegar leiðir úr svartnættinu sem eiga að gefa okkur von um að lausnir séu í sjónmáli. En því miður verðum við að leita á náðir miðla og sjáenda til þess að geta komist að því hvort ráðmenn séu einnig að leggja við hlustir eða sjái aðrar leiðir. Svo mjög skortir á samskipti þeirra við okkur fólkið í landinu. Ráðamenn, eftirlitsstofn- anir, endurskoðendur og forsvarsmenn banka þurfa að axla sína ábyrgð. En það léttir ekki byrðinni af almenningi sem kemur til með að greiða skuldirnar. Ég frábið mér því þau drottningarviðtöl sem þetta fólk kemur fram í þar sem það vísar sinni ábyrgð til annarra. Þau breyta ekki skuldsetningu þeirri sem þeir komu þjóðinni í. Þeir sjálfir geta aldrei greitt reikninginn. Það sem hins vegar vekur furðu og skiljanlega reiði almennings er að sama fólkið situr enn við kjötkatlana. Það virðist hafa óheft aðgengi að því að klóra yfir þau mistök sem hér hafa verið gerð og sem það hefur verið meðvirkt í. Sama fólkið, jafnvel gömlu bankastjórarnir eru enn í bönk- unum og útdeila enn fé. Jafnvel til fyrri vina sinna og yf- irmanna. Mörgum finnst að ráðherrar, starfsmenn eftirlitsstofnana og Seðlabanka ættu að víkja fyrir fólki sem hefur ekki sömu tengsl við þau hneykslismál sem upp hafa komið. Eyða á óvissu með því að hleypa öðru fólki að. Hversu lengi verður reynt að strá ryki í augu okkar og salti í sárin? Er eðlilegt að fyrrverandi Landsbankastjóri þiggi laun og fríðindi líkt og ekkert áfall hafi dunið á bankakerfinu? Þjóðin okkar hefur lengst af þjáðst af slitróttu langtímaminni og hafa margir, kjörnir sem og sjálfkjörnir fulltrúar þjóðarinnar, notið góðs af því. Núna bjóða aðstæður ekki upp á að við gleymum neinu þar sem við munum öll beinlínis finna fyrir afleiðingum blekk- inganna í atvinnumissi og eignatjóni. Myndbönd á Youtube minna okkur núna á þá spillingu sem hér hefur farið fram án eftirlits án þess að yfirvöld lyfti fingri því til fyrirstöðu. Óhjá- kvæmilegt virðist að stokkað verði upp í þeirri flokkaskipan sem hefur verið við völd. Enda er að sjá að óbreyttir þing- menn séu einnig að gefast upp á forystu flokka sinna sem hvorki virðist halda þeim upplýstum né hlusta á hugmyndir þeirra um breytingar. Í dag er ekki nokkur leið að sjá hvaða flokkar geta átt sam- leið. Auðveldara er að greina á milli manna heldur en flokka. Æskilegra væri að hér væru tveir flokkar líkt og í Bandaríkj- unum. Fjöldi flokkanna hér hefur gert það að verkum að auð- veldara er að leggja áherslu á eiginhagsmuni fárra heldur en hagsmuni heildarinnar. Of margir „samningar“ hafa verið gerðir, of náin tengsl hafa verið mynduð á milli stjórnmála- manna og forsetans við aðila útrásar og of margar vafasamar ráðningar hafa átt sér stað í opinber stöðugildi. Allt þetta hef- ur gert það að verkum að núverandi flokkapólitík í dag er lítt trúverðug í huga þess almennings sem flykkist á Austurvöll. Við þurfum líkt og heimurinn allur að sættast við þá hugsun að nýtt hagkerfi er nauðsyn. Við þurfum að horfa fram á veg- inn en án þess að gleyma þeim aðgerðum sem komu okkur í þetta ástand. Ísland á sér framtíð þrátt fyrir dökkar horfur um stund. Ekki hef ég sjálf samt mikla trú á að innganga í ESB- „vinabandalagið“ sem nú reynir að kúga okkur til samn- inga verði okkur í hag. Fórnarkostnaðurinn við inngöngu má ekki steypa komandi kynslóðum í óviðráðanlegar skuldir. En mér finnst augljóst að við þurfum að taka upp alþjóðlega mynt, hver sem valin verður. Nú er mikilvægt að gera ekki bráðræðismistök í örvænt- ingu. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að vegna smæðar okkur höfum við fyrst fundið fyrir alheimskreppunni sem nú skellur á, en ég tel einnig að vegna smæðar okkar munum við fyrst allra ná okkur farsællega út úr henni. Svartsýnisböl og afturhaldssemi mega ekki þvælast fyrir nýjum hugmyndum og djörfung. Hér var áður mikill iðnaður sem smám saman hnignaði og laut í lægra haldi fyrir uppgangi fjármálaheims- ins. Verður nú ekki að snúa sér að grunnatriðunum? Skapa verðmæti og vinnu með því að framleiða og skapa íslenskar afurðir með hugviti og höndum landsmanna. Breytingar nauðsynlegar Karen Elísabet Halldórsdóttir, BA í sálfræði, MS í mannauðsstjórnun, skrifstofustjóri á ESD. STAÐA og störf arkitekta hafa verið mjög til umræðu á síðustu dögum. Ljóst er, að á næstu vikum og mánuðum mun stór hluti arkitekta verða án atvinnu, haldi svo fram sem horfir. Þá er einnig viðbúið, að svipað ástand muni fljótlega skapast hjá öðrum hönnunar- og ráðgjaf- arstéttum, s.s. verkfræðingum. Mikill þrýst- ingur er því á stjórnvöld að grípa inn í at- burðarásina og treysta grundvöll þessara faggreina með auknum umsvifum í opinberum framkvæmdum. Þrátt fyrir hina dramatísku atburði síðustu vikna er óumdeilt, að veruleg niðursveifla var framundan í byggingariðnaði og mann- virkjagerð hérlendis, með tilheyrandi áhrifum á þær stéttir, sem þjónað hafa þeim markaði. Því virðist hvorki sanngjarnt né raunhæft að ætlast til þess að hið opinbera, þ.e. ríki og sveitarfélög, leysi að fullu af hólmi hlut einka- framtaksins við mannvirkjagerð á Íslandi. Gott má heita ef opinberir aðiljar geti nokk- urn veginn haldið sínum hlut í þeim efnum við núverandi aðstæður. Það er á hinn bóginn mjög mikilvægt, að þær aðgerðir stjórnvalda til styrktar hönnunar- og ráðgjafarstéttum, sem nú er kallað stíft eftir, verði með þeim hætti, að þær leiði til framfara og varanlegra betrumbóta á vinnubrögðum við mann- virkjagerð. Um leið þurfa þær að styrkja fag- lega innviði þeirra hópa er starfa á þeim vett- vangi. Á næstunni munu opinberir aðiljar standa frammi fyrir því að velja verkefni til und- irbúnings, hönnunar og framkvæmda á kom- andi misserum. Af sjónarhóli arkitekta þarf einkum að hafa tvennt í huga við slíkt val:  Í fyrsta lagi að velja verkefni sem end- urspegla þá miklu fjölbreytni í lausnum og aðferðafræði, sem eru hornsteinar bygg- ingarlistarinnar á hverjum tíma. Þá fjöl- breytni má ekki síst greina í þeim áhuga- verðu arkitektasamkeppnum sem efnt hefur verið til á undanförnum árum, þar sem stórir hópar arkitekta hafa lagt fram mikla vinnu við lausn tiltekins verkefnis, en gjarnan nálgast það á mjög ólíka vegu. Því er afar mikilvægt, að valin verði metn- aðarfull en hæfilega stór verkefni til áframhaldandi hönnunar í bland við sam- keppnir um önnur ný. Gamli Nói kunni á þessu lagið: hann fyllti ekki örkina af einni sort.  Í öðru lagi er mjög mikilvægt, að opinberir aðiljar taki nú höndum saman við arkitekta um stórauknar kröfur til gæða hins byggða umhverfis. Árið 2007 var mótuð slík gæða- stefna í samvinnu menntamálaráðuneyt- isins og arkitekta undir nafninu Menning- arstefna í mannvirkjagerð. Engri opinberri framkvæmd á nú að ýta úr vör, sem ekki uppfyllir þá metnaðarfullu en um leið skyn- sömu stefnu sem þar var mörkuð. Við eig- um nú þegar að hefja þá þróunarvinnu, sem er nauðsynleg forsenda framfara í hönnun og byggingu mannvirkja. Og gerir byggingarlistinni til góða. Við þurfum að innleiða nýja hönnunarstaðla, sem draga úr líkum á mistökum við undirbúning og framkvæmdir, en geta einnig auðveldað rekstur og viðhald opinberra mannvirkja í framtíðinni. Þá er mikilvægt að stíga al- vöru skref í vistvænni vottun bygginga, þar sem hönnun tekur markvisst mið af því að hámarka gæði og notagildi en lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Arkitektar og aðrir ráðgjafar hafa legið undir nokkru ámæli fyrir að hafa verið helst til leiðitamir í hinni gífurlegu þenslu á bygg- ingarmarkaði undanfarinna ára. Þar hefur, því miður, oft verið farið fram meira af kappi en forsjá og getum við arkitektar ekki vikist undan ábyrgð í þeim efnum. En nú er lag til betri háttu. Og ef fúskið, hvar og hvernig sem það hefur birst okkur, verður fórnarlamb kreppunnar – þá hefur farið fé betra. Arkitektar og hið opinbera Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.