Skinfaxi - 01.09.1926, Qupperneq 3
SKINFAXI
99
Sanrbandsstjórnin lítur einnig svo á, að aðgerðir ung-
mennafélagsins Velvakandi í Reykjavík síðastliðinn
vetur í þessu málefni hafi verið ærið viðsjálar og inisr
ráðnar, auk illa viðeigandi aðferðar. Virðist okluir hréf
félágsstjórnar (U. M. F. Velvakanda) þannig fyrir
komið að miklu fremur mcgi búast við að það veild
bindindisstefnuna heldur en styðji. Við sambandsstjórn-
endur viljum einhuga og eindregið taka það skýrt fram,
i þessu efni, að við skoðum bindindisheitið scm ó f r á-
víkjanlegt ákvæði, einkum nú á tímum, — og sem
eitt Iiið allra þýðingarmesta hjálparatriði til siðmenn-
ingar og manndygða. Við neitum algerlega að vilja
kaupa þann lítilvæga og mjög svo vafasama liðsauka er
félagsskapnum kynni — að sumra manna dómi — að
Jilotnast við það að bindindisheitið yrði burtu numið.
Við vitnum i þessu sambandi til samdóma álits allra
þeirra eldri ungmennafélaga: fjölmargra samþykta
bæði á sambands og héraðsþingum og fjölda annara
ályktana og ummæla einstakra félaga.
II. þjóðmenningarmál.
Ungmennafélögin ætla sér einnig-----samkvæmt
stefnuskrá sinni -— af „fremsta megni að styðja, við-
hakla og efla alt það sem þjóðlegt er og horfir hinni
islensku þjóð til gagns og sóma“.
Ætla má að enginn sá ungmennáfélagi sé til, er ekki
sé þessu samþykkur og viðurkenni réttmæti þess i
orðum — enda væri illa hægt að álíta þann mann eiga
heima i ungmennafélagsskapnum er þessu vildi mót-
mæla. — En því miður er altof stórum ábótavant í
þessu efni hvað álmga og aðgerðir snertir.
Með miklum rétti má álíta að aldrei hafi verið jaín-
mikil þörf á þjóðræknisstarfsemi ungmennafélaganna,
síðan þau hófu starfsemi sína sem einmitt nú. Breyti-
legir tíinar og byltingasamir á liögum og lífsslcilyrðum,