Skinfaxi - 01.09.1926, Blaðsíða 4
100
SKINFAXI
hraðstreymi ýmissa erlendra miður viðeigandi áliriía,
skaSsamar lífsstefnur og óheilbrigSar tískubylgjur er
óstöSvandi renna yfir og ótal margt fleira. Alt ]?etta
sem þegar er talið og fjölmargt fleira utanaSkomandi,
rekur brottu, veikir, eySileggur eSa glatar meS öllu
niörgu því góða og miklu betur viðeigandi og sæmandi
í þjóðkostum, háttum, siðum og menningu, er'þjóð þessd
liefir átt og búið að öldum saman sér til ómetanlegs
ágætis. Hér við bætist svo innbyrðis, eigin dáðleysi og
léttúð, vöntun á dómgreind, sjálfstæði og siðferðis-
þroska, svo að fjöldi fólks lætur ginnast af hverju þvi
sem fyrir augu og eyru ber, oftast til margvislegs skaða
og mikils vansóma. Sem eilt mikilsvarðandi atriði er
vert að minna á að meðferð málsins, jafnvel lijá ung-
mennafélögum, er oft sorglega ábótavant. Öll sú árás
sem þjóðerninu þannig er búin er ærið áhyggjuefni og
ætti að vera hverjum góðum ungmennafélaga livöt til
varnar og viðreisnar hverju þjóðnýtu atriði. En það sem
allramest eykur nauðsynina einmitt nú á ítrustu kröft-
um félaganna til styrktar þjóðræknislegum málefnum
er hið væntanlega þ j ó ð h á t í ð a r h a 1 d árið 19 3 0.
par hlýtur alþjé)ð þessa lands að vera skylda og lcápps-
mál að vel takist. Og það er þegar full ljóst að sæmd og
framtíðarheillir þjóðarinnar verða þar fyllilega í húfi.
Ungmennafélögin verða fremur öllum öðrum fé-
lagsskap i þessu landi — samkvæmt stefnuskrá sinni —-
að leggja itrasta kapp á að veita þar sitt l'ulltingi.
Sambandsstjórnin hefir í þessu efni gert þær fyrir-
ætlanir að ungmennafélögin ættu þar að hafa sérstaka
forgöngu í þessum fjórum aðalatriðum: íslenskri glímu,
sundi, þjóðbúningum og þjóðdönsum.
Sem byrjun á undirbúningi þessum má telja náms-
skeið það er samband U. M. F. í. heldur nú i vetur í
Reykjavík ásamt íþróltasambandi Islands, þar sem ætl-
unin er að kent verði hæði íþróttir og þjóðdansar.
Við skorum sérstaklega á ungmennafélögin, í þessu