Skinfaxi - 01.09.1926, Page 6
102
SKINFAXI
einnig gerð ályktun um ö r n e f n a s ö f n u n, sem fé-
lögunum væri viðeigandi verkefni ásamt fleirum. Hefir
og verið minst á þetta í síðasta árgangi Skinfaxa og
verður hér í svipinn að nægja að vísa til þess.
e. K y n n i n g f é 1 a g a n n a m. fl. væri einnig
vert að talca til yfirvegunar sem milcilsvarðandi atriði.
— par með skulu félagar mintir á þ ú u n a r á-
k v æ ð i ð sem eitt af því einkar viðeigandi og sjálf-
sagða að framfylgja i öllum félagsskap.
Eigi er hér rúm til að fara frekar út í þessi eða önnur
fleiri málefni félaganna, en Skinfaxi mun eftir þörfum
og ástæðum taka þau til meðferðar, til rækilegri og
gleggri yfirvegunar.
Við heitum að endingu á hvern einasta góðan ung-
mennafélaga að reynast ætlunarverki og hugsjónum
félagsskaparins sannur og trúr félagi, —Og
við vonum að liver og einn vilji reynast góður félagi. —
Við heitum á a 11 a n okkar félagsskap að starfa livar-
vetna til aukinna manndáða, þjóðarsæmdar og þjóðar-
lieilla. Og við treystum, að það starf liljóti að verða til
blessunar fyrir okkar íslenslvii þjóð.
í sambandsstjórn U. M. F. í.
Kristján Karlsson. Guðm. J. frá Mosdal.
Samliandsstjóri. Ritari.
Sigurður Greipsson.
Féliirðir.
Yngri deild U. M. F. E.
Á Eyrarl^aklva var ekkert ungmennafélag, er eg flutt-
ist liingað og tók við forstöðu barnasliólans liér liaust-
ið 1919. Eg liafði þá verið ungmennafélagi frá 14 ára
aldri og undi með engu móti utan félagsskaparins.