Skinfaxi - 01.09.1926, Page 8
104
SKINFAXI
er hún kýs sér. Henni til styrktar skulu vera þrír eldri
félagar, formaður og tveir aðrir, er hann tilnefnir.“
2. febrúar sama ár komu svo allir ófermdir félagar á
sérfund fyrsta sinn. Er sá dagur stofndagur „Yngri
deildar U. M. F. E.“ Hefir hún þvi starfáð liðug 5 ár,
svo að telja má að reynt sé livernig gefst nýbreytni þessi
í starfsháttum U. M. F.
það er skemst af að segja, að engar liafa brugðist vona
þeirra, er reistar voru á yngri deild U. M. F. E. við
stofnun hennar. paðan hefir aðaldeild félagsins komið
sístreymandi lind nýrra krafta. Og kraftar þeir liafa
verið tamdir og þroskaðir langt umfram það, sem
verið hefði án yngri deildar. Nýfermd ungmenni eru
kunnug fundareglum og félagsstarfi, hafa vanist á að
koma hugsun sinni i orð, og — það sem mest er um
vert — kynst hugsjónum U. M. F., lært að skilja þær,
virða og elska.
Yngri deild heldur venjulega fundi hálfsmánaðarlega
frá októberbyrjun fram i maí. Á fyrsta haustfundi eru
starfsmenn deildarinnar kjörnir úr hópi deildarbama.
Formaður deildarinnar stýrir fundum hennar, ritari fær-
ir gerðabók og féhirðir krefur inn árgjöld deildarbarna
(kr. 1.00 á ári), og skilar þeim til aðalféhirðis. Tveir
ritstjórar stýra handrituðu blaði, er deildin gefur út og
„Stjarna“ nefnist. Kemur hún út á hverjum fundi. Rita
börnin hana að mestu leyti sjálf, og hefir hún oft verið
prýdd teikningum og ljósmyndum. — Nefnd barna úr
deildinni raðar niður verkefnum á fundi fyrir hálft
starfsár i senn. Eru þar rædd létt málefni og meðfærileg
börnum, félagar segja frá viðskiftum sínum við dýnn
og því, sem þeiin hefir tekist að gera fyrir þau, sögur
eru sagðar, lesið upp, sungið, kveðist á og farið í leiki.
Einn fundur á vetri er kvöldvaka. Situr þá hver við
sitt verk, en einn les hátt fyrir alla. Kaffi á miðri vöku,
en húslestur með sálmasöng i vökulok.
Oft eru fjörugar umræður á l’undum yngri deildar.