Skinfaxi - 01.09.1926, Page 10
106
SKINFAXI
færeyska sögu. T— 8. Hvaða farartæki er skemtilegast?
Málshefjandi Sigurður Jónasson. Taldi liann hestinn
skemtilegasta farartækið. Auk málshefjanda töluðu:
Steinn Guðmundsson, Kristjana Guðmundsdóttir, Gest-
ur Ólafsson, Ketill Gíslason, Ástríður Sigurðardóttir og
Ingimar Jóhannesson. —- 9. Jóhanna Gísladóttir las upp
sögu. — 10. Aldís Ivristjánsdóttir las upp þuluna: „Gelck
eg upp í álfahvamm“. — 11. Aðalsteinn Sigmundsson
stakk upp á því að yngri deild U. M. F. E. færi skemti-
ferð upp á Ingólfsfjall nú á næstunni. Um uppástung-
una ræddu: Jóhanna Gísladóttir, Gestur Ólafsson, Ingi-
mar Jóhannesson, Ketill Gíslason. Sainþykt var að fara
og kosin 5 manna nefnd til undirbúnings, þau: Margrét
Ólafsdóttir, Ketill G., Gestur Ó., Ivristjana porvalds-
dóttir og Leifur Haraldsson. — 12. Fundi slitið með
söng kl. 8 e. h.“
Starfsskrá yngri deildar U. M. F. E., febrúar—mai
1925: 1. fundur: Hvern forn-Islending þykir Iþér vænst
um? Hvaða gagn er af að vera ungmennafélagi? Lesinn
kafli úr fornsögum. Upplestur. — 2. fundur: Skuld-
binding okkar. Hvað getur y. d. gert fyrir iðnsýning-
una í vor? Lesið kvæði. Sögð tröllasaga. — 3. fundur:
Hvort er betra, dansleikur eða skemtiför? Ilvort er
fegurri íslenskur kvenhúningur eða „danskur“? Kveðist
á. :— 4. fundur: IJvaða landslag er fegurst? Að livaða
dýri er mest gaman? Samlestur. Sagðar skrítlur. —
5. fundur: Aðaláhugamál mitt. Hvaða fararlæki er
skemtilegast? Lesinn kafli úr Grettlu. Farið með þulu.
— 6. fundur: Ilverjir eru helstu kostir íslands ? Hvernig
verður best varið tómstundunum í sumar? Sögð úti-
legumannasaga. Lesið kvæði.
Samband yngri deildar og eldri er sem allra nánast,
svo að börnin finni glögglega, að þau eru liður í þeirri
heild, sem heitir U. M. F.-Eyrarbakka. Lög og sjóður er
sameiginlegt deildunum, og fund hafa þær saman af og
til. Börn koma af sjálfu sér upp í efri déild, er fermd