Skinfaxi - 01.09.1926, Side 15
SKINFAXI
111
við komumst ekki yfir það, sem við höfum hér“ o. s.
frv., — liafa með öðrum orðum vanrækt eða misskilið
köllun sína bæði utan lands og innan, enda eru liðnar
eða eru að liða undir lok. Gætið að þvi, að mennirnir,
sem segja ykkur: við höfum nóg viðfangsefni hér heima
o. s. frv., er ræða er um endurnám Grænlands, eru ein-
mitt mennirnir, sem aldrei liafa leyst neitt af þessuni
viðfangsefnum, sem þeir eru að tala um að séu íyrir
hendi, af því að þeir eru óhæfir til að leysa neitt við-
fangsefni neinstaðar. Eins er líka liver heil þjóð, er
hugsar þannig, óhæf í samkepni milli þjóðanna og lienni
er dauði og eyðilegging vís.
Litið yfir söguna og þið munuð sjá, að öll heims-
veldin, sem upp hafa risið, hafa eitt sinn verið örhtil
og afllítil ríki. Persar voru eitt sinn að eins litil hjarð-
þjóð í Asíu. Rómaveldi var eilt sinn ekki annað en skýli
nokkurra flóttamanna á hæðum við Tíher. pjóðirnar,
sem mynduðu Mongólaveldið, Kalífaveldið og Tyrkja-
veldi voru eitt sinn örlitlar og lítilmagna hjarðþjóðir i
Asíu. Byrjun Spanska heimsveldisins var upphaflega
nokkrir liraustir Gaular, er stofnuðu riki á hásléttu
Spánar. Um upphaf Frakkaveldis er nokkuð líkt liátt-
' að. Ileimsveldi það, sem nú er kailað Rússland, var upp-
haflega stofnað af nokkrum sænskum landnámsmönn-
um. pað, sem nú er kallað breska heimsveldið, var upp-
haflega ekki nema nokkur þúsund saxneskir og nor-
rænir víkingar, er námu land á lítt bygðri, skógivax-
inni ey við vesturströnd Norðurálfu. Annað voldugasta
ríki heimsins nú, Bandarikin, voru fyrir liálfri annari
öld síðan, ekki nema strjálbýlaAnýlendur á strönd
mikils meginlands.
Stórveldi hafa verið bygð upp með hernaði. pau hafa
jafnan hrunið. En engin þjóð hefir vaxið á öðru en land-
námi, með þvi að breiða sig sjálf út yfir löndin. Gamla
boðorðið: Aukist og margfaldist og uppfyllið jörðina
og gerið ykkur hana undirgefna, er leiðin fyrir litla