Skinfaxi - 01.09.1926, Síða 16
112
SKINFAXI
þjóð til þess að verða stór og voldug. J>etta er jafnsatt
fyrir því, þótt ómennin vor á meðal ærist yfir því, að
nokkur skuli leyfa sér þá dirfsku að halda því fram,
að lítil þjóð, sem þeir eru í, megi reyna annað en hnipra
sig svo saman og' halda undan brekkunni hinn hreiða
veg aðgerðaleysisins og liugleysis til eilífrar glötunar.
— peir lialda alla aðra eftir sér.
Við íslendingar erum fyrsta lieimssiglingaþjóð þess-
arar jarðar. Við erum fyrsta þjóðin, sem vogaði sér að
sigla þvert yfir hafið. Fram til þess dags er Kolumbus
vogaði scr yfir hafið eflir íslenskri leiðsögu, höfðu eng-
ar þjóðir vogað sér meira en að þræða með ströndum
fram. — Við íslendingar vorum þá mikil landnáms-
þjóð. Við námum Grænland og miklu viðáttumeiri
lönd í vesturheimi, en menn hafa hingað til haldið. Is-
land var þá stórveldi hafsins. Öll þessi lönd fyrir vestan
hafið og fyrir sunnan og vestan leiðarstjörnu voru í
vorum lögum eða voru ríki. — Endurminningin um alt
þetta hlýtur að hraða hjartaslögum hvers Islendings
með hreinu hlóði í æðum, og hraða þeim enn meir
vegna þess, að öll vor fornu lönd eru enn ekki töpuð,
að enn eru möguleikar til að skapa nýtt íslenskt land-
nám í þeim hluta þessara landa, sem enn eru ónumin,
að enn eru möguleikar fyiúr íslensku þjóðina til þess
að verða heimsþjóð, að enn eru möguleikar lil þess að
gera vora litlu og aflvana þjóð að voldugu heimsveldi.
Sjáir þú það ekki og viðurkennir, að leiðin til að verða
sterkur er að neyta allrar orlcu við ofurefli, skiljír þú
það elcki, að leiðin til að fá óskir uppfyltar og fagra
drauma gerða að raunveruleilca er að einhlína á hið
liæsta takmark og stefna þangað af allri orku, ert þú
ellinnar og dauðans — bæði hins tímanlega og and-
lega — svo eg get elckert tal átt við þig. -— En sért þú
æskunnar og lífsins skilur þú þetta og veist og viður-
kennir, að það sem okkur Islendingum liggur mest á