Skinfaxi - 01.09.1926, Qupperneq 19
SKINFAXI
115
auðlegð Grænlands, fáum við verkefni handa fossum Is-
lands, svo þeir hætta að vera verðlaus eign, en hreytast
í stórkostlega auðlegð. ísland fær framtíðarmöguleika
sem stóriðnaðar og stórborgaland; að svo komnu verða
láglendin á íslandi ræktuð og hlíðar fjalla vorra ldædd-
ar skógi. —
En höfuðástæðan fyrir því að við íslandingar eigum
að nema Grænland er sú, að með þvi bætum við og
aukum atvinnuvegi vora, vellíðan, hókmenning og auð-
söfnun, þar sem allar framfarir á Islandi verða miklu
örari. Auðlegð Grænlands á að græða ísland.
Hinar islensku hafnir á vesturströnd Grænlands frá
62° n. br. og norður að Iieimskautshaug eiga fyrir liönd-
um að verða upplagshafnir fyrir timbrið úr Húðsons-
flóalöndunum og hveitið úr Vestur-Kanada, og alla
þungavöru er fara á til þessa hluta Kanada. Heims-
verslunarborgir þessa mikla lands eiga þvi fyrir hönd-
um að rísa upp við þessa firði á Vestur-Grænlandi, og
sú þjóð, sem fyrst nemur þá, tryggir sér þar með þá
framtíð að verða heimsverslunar og heimssiglinga-
þjóð. Með því að tryggja sér þessi miklu náttúruauð-
æfi, fá íslendingar möguleika til þess að þroslca og
nota marga ágæta hæfileika er þeir hafa erft frá for-
feðrum sínum. Og með þessu landnámi á Grænlandi fá
íslendingar aðstöðu gagnvart Kanada, sem getur orðið
Vestur-Islendingum ómetanleg.
Islendingar lá forfeðrum sínum, að 'þeir skyldu ekki
nema Vesturheim og gera vora þjóð að heimsþjóð i
stað þess að láta kynslóð eftir kynslóð falla úr hor á
húsgangi heima á Islandi. Forfeður vorir eru ámælis
verðir fyrir skilningsleysi sitt á því að nema Norður-
Ameriku, en hversu óendanlega eru þeir íslendingar,
er nú lifa, ekki ámælisverðari fyrir að sitja sofandi og
aðgerðarlausir í Grænlandsmálinu og láta hin geysilegu
auðæfi Grænlands, er þeir sjálfir eiga, ganga úr greipum
sér og jafnframt hina miklu framtíð, er Islendingar