Skinfaxi - 01.09.1926, Blaðsíða 20
116
SKINFAXI
geta skapað sér í löndunum fyrir vestan Grænland, er
Grænland er orðið íslenskt land. Forfeður vorir höfðu
að eins opna báta og miklu lakari vopn en þeir Norður-
álfumenn, er síðar komu, höfðu til að berjast við villi-
mennina með. Við höfum nú enga villimenn við að
berjast í þessum vesturlöndum, heldur eru þar kauplág-
ir fæðingjar, sem eru fúsir til að vinna oklcur gagn fyrir
litla greiðslu. Við höfum gufuskip, síma, vélar og auð,
og öll liin fullkomnustu tæki og kunnáttu til þess að
sigla um höfin og nema lönd, en hvað höfðu forfeður
vorir af þessum tækjum?
pað hefir enn ekki verið sannað opinberlega, að við
íslendingar eigum Grænland de jure, en við eigum það
engu að siður fyrir því, þótt sönnunin fyrir þessu hafi
eldci verið hrópuð út um stræti og gatnamót.
]?ar sem Island er nú orðið sjálfstætt ríki, er Græn-
landsmálið orðið og verður milliríkjamál, pólitíkst
mál, og einhuga alþjóðarmál. Grænlandsmálið verður
að eins leyst með pólitík á kjörfundum um landið og
við atkvæðagreiðslu á Alþingi verður lirslitum Græn-
landsmálsins ráðið. — pegar Grænlandsmálið er komið
inn á þing, keppast flokkarnir hver í kapp við annan
um að gera kjósendum hærra boð í Grænlandsmálinu
til þess að ná fylgi á því, þvi Grænlandsmálið verður
innan skamms heilagast hjartamál alþjóðar á þessu
landi. Menn heimta, að Grænland verði aftur gert að
lifandi hluta úr vorri ættjörð, að íslenskir söngvar
hljómi þar aftur í klettunum, að íslenskir leikar verði
aftur Ieiknir á leikvöllum feðra vorra, að íslensk vöggu-
ljóð verði aftur sungin þar í íslenskum stofum, að hver
hæð og laut, hver tindur, hver dalur, hver vogur, hver
vilc, er eittsinn báru íslensk nöfn, fái aftur íslensk heiti,
og að guð vors lands hljómi sem vorboði nýrra tíma
yfir helguðum þingvelli feðra vorra að Görðum.
Hið fyrsta, sem alþingi Islendinga á að gera i Græn-
landsmálinu er að heimta, að Danir afliendi íslend-