Skinfaxi - 01.09.1926, Page 30
126
SKINFAXI
Nú er meiru að glata en fyrr, ef illa tekst.
Enn dreymir marga um virkjun fossanna í stórum
stíl, mcð erlendu fjármagni og erlendri fyrirmynd.
Trúin á gullið virðist enn í fullu fjöri.
Ef porsteinn Erlingsson mætti lita upp úr gröf sinni,
mundi hann setjast við fótskör fossanna, sem góðu
heilli eiga enn strengi sina óskorna, og flytja þeim
lieitari lol'gerðaróð en nokkru sinni fyrr. En hann mundi
lika verða orðlivassari en nokkru sinni fyrr i garð þeirra
manna, sem vitandi eða óvitandi eru að Jijóða heim
nýju kúgunarvaldi, kúgunarvaldi gullsins.
porsteinn mundi snúa máli sínu til æslcumanna lands-
ins og eggja þá lögeggjan lil framsóknar í öllum góð-
um lilutum. En fyrst og siðast mundi hann vara þá við
því, að selja sál sína og frelsi, láta glepjast af erlendu
gulli og erlendri vclamenningu.
Drottinvald gullsins er versta harðstjórn, sem sögur
fara af. Næstu áratugi mun reyna mjög á manndóm ís-
lendinga, livort þeir liafa djarfleik og samheldni til
þess að verja frelsi sitt og þjóðerni gegn erlendum
Glcipnis-fjötrum, sem reynt mun verða að læða á þjóð-
ina. En náttúra þeirra fjötra er sú, að því Iiarðara, sem
um er brotist, þegar þeir hafa verið á lagðir, því skarp-
ari verða þcir.
Finnur Sigmundsson.
Esperanto.
1. Dr. Zamenhof.
þ>að stafar frægðarljómi af mönnum eins og Hanni-
bal, Ivarli tólfta og Napoleoni. Styrr mikill stóð um þá
þegar í lifanda lífi. Og þó að þeir séu fyrir löngu komn-
ir undir græna torfu, þá er nafn þeirra enn á hvers
manns vörum. peir voru mikilmenni.