Skinfaxi - 01.10.1936, Page 2
98
SKINFAXI
Sambandsmál.
Sambandsþing
U. M. F. I., hið 11. í röðinni, var liáð i Þrastaskógi 13.
og 14. júní i ár. Sátu það 14 fulltrúar frá öllum héraðs-
samböndunum, sem nú eru í U. M. F. I., og auk þess
öll stjórn sambandsins og nokkrir gestir. Frá einstök-
um félögum, sem eru í U. M. F. I. án milligöngu hér-
aðssambanda, kom enginn fulltrúi, og frá Héraðssam-
bandinu Skarphéðni kom aðeins helmingur kjörinna
íulltrúa til þings.
Sambandsþing þetta var um alll lúð ánægjulegasta.
Þar var unnið af heilindum þeim og myndarskap, sem
ungmennafélögum er eiginlegur. Og þingið bar gæfu
til að laka svo á málum þeim, sem fyrir lágu, að sam-
þykktir þess hafa vakið athygli og eru líklegar til að
valda tímamótum í sögu félagsskaparins.
I eftirfarandi smágreinum verður getið nokkurra
helztu mála, er þingið fjallaði um, og ýmislegs annars
um starf og stefnu U. M. F. 1. nú og framvegis.
Ný stefnuskrá.
Sambandsþingið 1933 setti ný sambandslög, og gekk
þannig frá þeim, að í þeim var raunar engin stefnu-
skrá fyrir ungmennafélögin. Þingið í ár hefir bætt úr
þessu, með því að endurnýja 2. grein sambandslaganna,
og er hún nú svohljóðandi:
Samband U.M.F.Í. og deildir þess skulu hafa bindindi
um nautn áfengra drykkja, og vinna samkvæmt eftir-
farandi stefnuskrá:
1. Að vernda og efla stjórnarfarslegt, menningarlegt og
fjárhagslegt sjálfstæði íslendinga og vekja virðingu
þeirra fyrir þjóðernislegum verðmætum sínum og
annarra.
2. Að hjálpa félagsmönnum og öðrum æskulýð til auk-