Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 14
110
SKINFAXI
ingarritið þá út. Var samþykkt um það eftirfarandi
ályktun:
„SambandsþingiS ályktar að skora á sambandsstjórn,
að hlutast til um, að ungmennafélögin safni nú þegar
áskriföndum að minningarritinu. Fái málið viðunandi
undirtektir, felur þingið sambandsstjórn að ráða sér-
fróðan mann til að semja ritið. Ennfremur skorar sam-
bandsþingið á öll þau ungmcnnafélög, sem ekki hafa
þegar sent skýrslur og aðrar nauðsynlegar upplýsingar
um starfsemi sína á liðnum árum, að gjöra það sem
fyrst, vegna hins fyirhugaða minningarrits.“
Sambandsstjórnin treystir því, að minningarrit
ungniennafélaganna seljist vel, jafnmargir menn og nú
eiga kœrar minningar tengdar við þann félagsskap.
Þess vegna hefir hún þegar ráðstafað samningu rits-
ins. Hefir hún náðið ungan og áhugasaman sagnfræð-
ing, Geir Jónasson, er lokið hefir meistaraprófi við
,háskólann i Osló, til að semja ritið. Geir Jónasson er
mjög vel undir þetta verk búinn, vegna rannsókna, er
hann hefir gerl á atvinnu- og menningarsögu síðustu
áratuga, meðal annars vegna bókar, sem liann hefir
samið fyrir Kaupfélag Eyfirðinga. Mun hann vinna að
undirbúningsrannsóknum og samningu ritsins í vetur,
og er ráðgert, að það komi út næsta haust. Verður
vandað til útgáfu þess, m. a. fjöldi mynda. Boðsbréf
lil áskrifendasöfnunar verða send sambandsfélögun-
um í vetur. —
Útbreiðsla og fleira.
Á sambandsþingi kom fram mikill áhugi á því, að
hefja nýja vakningu í ungmennafélagsskapnum og
vinna honum aukið fvlgi æskunnar. Eftirfarandi álykt-
anir sýna þetta:
„Sambandsþing leggur áherzlu á, að sambandsstjórn
beiti sér af alefli fyrir því, að fá þau ungmennafélög
og sambönd, sem nú standa utan U.M.F.Í., til þess að
ganga í það, og að stofna þar ungmennafélög, sem þau
eru ekki fyrir.“