Skinfaxi - 01.10.1936, Qupperneq 15
SKINFAXI
111
„Sambandsþing U.M.F.l. óskar eí'tir, aS fá ungmenna-
félög í héraösskólunum inn i sambandið, og samþykk-
ir, að þau félög skuli vera þar skaltfrjáls.“
„Sambandsþing U.M.F.Í. 193(i ályktar, að ungmenna-
félagar skuli gera 17. júni ár hvert, frá og með árinu
1937, að sérstökum baráttudegi fyrir stefnumálum sín-
um. Telur þingið vel við eiga, að dag þennan fari fram
merkjasala til ágóða fyrir U.M.F.1.“
„Þingið felur sambandsstjórn að fá því framgengt, að
eitt útvarpskvöld á ári verði lielgað sambandi Ung-
mennafélaga íslands, eins og fjölmörg önnur félög hafa
þegar fengið. Auk þessa hlutist sambandsstjórnin til um
það, að nokkrir fyrirlestrar verði fluttir á vegum sam-
bandsins í útvarpið árlega.“
A'ð sjáll'söí*ðu mun sambandsstjórn gera það, sem
í hennar valdi stendur, til að framkvæma það, sem
ályktanir þessar mæla fjTrir um. Mun Danícl Ágúst-
ínusson sambandsritari, sem er ungur og heitur áliuga-
maður, g'anga í þjónustu sambandsins og ferðast fyrir
það i útbreiðsluskyni.
Kjörorð U. M. F. í.
Eins og kunnugt er, völdu ungmennafélögin sér
þegar í uppbafi „Islandi alll“ að kjörorði. Hefir kjör-
orð þetta jafnan verið notað meðal ungmennafélaga,
og þekkt meðal almennings sem einkennandi fyrir
stefnu og starfsemi íslenzkra ungmennafélaga. Und-
anfarin ár hefir kjörorðið verið lögfest í sambands-
lögum U. M. F. í. —
Síðustu ár hefir borið töluvert á þvi, að stjórnmiála-
flokkur einn, sem ungmennafélögunum mundi þykja
hin mesta hneisa að vera bendluð við, hefir gerzt
noldcuð djarftækur á kjörorð ungmennafélaganna.
Hefir mörgum ungmennafélögum sárnað þessi mis-
notkun kjörorðsins, og var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt á sambandsþingi, enda þótt ýmsum þyki engu
púði'i eyðandi á stjórnmálaflokk þann, sem hér á hlut
að máli: