Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 20
116
SKINFAXI
Frá þessum unga flugmálafrömuði vorum hefir
sambandsstjórn U. M. F. 1. borizt bréf það, sem hér er
birt, svo að ungmennafélagar geti atliugað tillögu flug-
mannsins.
Reykjavík, 23. júni 1936.
Tillaga til Ungmennafélaga íslands (U.M.F.Í.)!
Þar eð mikill áhugi virðist vera að vakna á meðal æsku
landsins á svifflugi, finnst mér rétt að vekja máls á þvi við
U.M.F.Í., þannig, að það fái tækifæri til að taka forystu i
þessu máli.
Tillaga mín er sú, að U.M.F.Í. vekji máls á þessu við ö 11
ungmennafélög landsins og leggi til, að hvert félag fyrir sig
stofni sjóð af frjálsum fjárframlögum félaga o g a n n a r r a
sem áhuga hafa á málinu; sjóðinn skal kalla Svifflugsjóð þess
bæjar, pláss, sýslu eða hrepps, þar sem félagið starfar.
Sjóð þennan skal gjaldlceri hvers félags hafa með hönduin,
telja hann upp á tveggja mánaða fresti og birta upphæð hans
á opinberum auglýsingastað hvers félags.
Skýrslu um upphæð sjóðsins skal senda forseta U.M.F.Í. á
missiris fresti frá stofndegi sjóðsins og oftar, ef þörf gerist.
Peningunum skal varið til svifflugkennslu, til kaupa á svif-
flugvél, vinnuteikningum og efnis til bygginga og viðgerða
á svifflugvélum.
Ekki má byrja vinnu með sjóðnum, fyr en hann er orðinn
minnst sjö liundruð og fimmtíu krónur að upphæð.
Svipuð tillaga mun einnig verða borin fyrir Bandalag ís-
lenzkra skáta (B.Í.S.).
Reynt verður að fá Ríkissjóð til þess að veita verðlaun og
viðurkenningu fyrir bezt unnið starf í þágu svifflugs á íslaudi,
l. d. einu sinni á ári.
Virðingarfyllst
Agnar Eldberg Iíofoed-Hansen
flugmaður.
Erlendur gestur.
Margir Islendingar, þar á me'ðal tnargir nngmenna-
félagar, þekkja Jóbannes Vclden, tékkneska hljómlisl-
armanninn og menntamanninn, sem dvaldi hér á landi
fyrir einum 6—7 órum. Hann varð mjög vinsæll af