Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 30

Skinfaxi - 01.10.1936, Page 30
126 SKINFAXI vera frjáls ferða minna og því hafði eg hvergi pantað mér dvalarstað. Mér hafði líka reynzt það svo í þessu ferðalagi, að þótt ferðamannastraumurinn sé mikill, þá sé þó mergð gistihúsanna tiltölulega enn meiri, og atstaðar hægt að fá inni. Eg liefi augastað á ýmsum gistislöðum þarna, sem auglýstir eru í bókum ferða- skrifstofanna. Um síðir ræð eg af að leita uppi gisti- síað, er nefnist Helgehy. — Þar liafa forfeður Selmu Lagerlöf búið, segir í ferðabókinni, auk venjulegra aug- iýsinga um legu gistihússins og öll þau gæði, er það hafi fram að bjóða. En Helgeby er 2 km. fyrir sunnan Sunne kaupstað. Eg kom farangri minum til geymslu og lagði síðan af stað, fólgangandi. Allt gekk náttúrlega eins og í sögu. Eg spurði vegfarendur til vegar, og að skammri stundu Jiðinni var eg komin „heim i hlað“ á Helgeby. Þetta er gamall herragarður, en liefir verið gerður að gistihúsi, eins og svo margir aðrir Iierragarðar í Vármlandi. Rósirnar í garðinum heima við húsið standa í fullum blóma, og skógurinn er klæddur fegursta sumarskrúði, það er aðeins ofurlítill spölur niður að Frykenvatninu, og liggur vegurinn gegnum bjarkargöng. Húsfreyja var ekki heima, en það var auðsóít mál, að fá þarna dvalarstað i nokkra daga. Gestir voru ekki margir fyrir, nema þeir, er komu og fóru eftir einnar nætur viðdvöl, því að þarna var einnig tekið á móti þessháttar ferðafólki, sem nú er orðið svo mikið um. Það ferðast fótgangandi, eða á reiðhjólum, kaupir sér ódýra gistingu i hinum svonefndu „Göngumannaheim- ilum“, (Vandrarhem) hefir með sér nesti, þegar þvi verður við komið, og kaupir eina og eina máltíð, þar sem það kemur við. Þetta hlýtur að vera mjög frjáls- legt ferðalag og skemmtilegt, og það hefir þann höfuð- kost, að það er ódýrt. Húsfreyjan kom nú heim og tók hún mér tveim höndum. Það varð auðvitað uppi fótur og fit, er það vitnaðist, að eg væri íslendingur, eins og

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.