Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1936, Side 45

Skinfaxi - 01.10.1936, Side 45
SKINFAXI 141 og eg var einn á ferð með hinni lífsreyndu konu. Þetta var engin borg. Það var miklu fremur þorp. Húsin voru l.jóí, sótugir skúrar með lágu risi og tjörupappa negld- um hingað og þangað á liliðar og gafla, en á milli skein i gráan og fúinn viðinn. Göturnar voru sóðalegar forar- vilpur, og sterkan óþef lagði að vitum manns. Við mætt- um fólki er laul okkur og sýndi okkur virðingu sína. Það var tötralega klætt og þreytulegt. Eg kom inn i hús þorpsbúa. Alstaðar átti Fátæktin og dætur hennar öndvegi. I hverju húsi var hópur af börnum, sem báðu um mat. Hann var enginn til. í hverju húsi voru konur, sem tærðust upp af blóðleysi, og þjáðust af önuglyndi út af aðgerðalausum eig'in- mönnum. I hverju luisi höfðu allskonar sjúkdómar heimsótt ihúana og héldu þar nú heilagt. —- Þannig er mitt fólk, þannig er mitt ríki, sagði fylgdarkona min. Eg þagði. — Dæm þú ekki lífið eftir þeim ytri formum, er það birtist i. Það, sein á bak við er, er aðalalriðið, sagði liún við þögn minni. Hún gekk að nokkurum líkum, sem enn hafði ekki verið tími til að jarða. Hún gerði krossmark með hend- inni yfir þau og sagði: — Sæll varst þú, sem þekktir þinn vitjunartíma, þú varst trúr yfir litlu og munt yfir mikið settur verða. — Þetta fólk hefir diáið úr hungri, lmgsaði eg, og við héld- um ferð okkar áfram. — Af hverju vinnur hér enginn neitt? spurði eg. Hún leit á mig dálítið hissa: — Ilér er atvinnuleysi. -— Á hverju lifir fólkið þá? spurði eg. — Littu til fuglanna í loftinu! Hvorki sá þeir né upp- skera og þó lifa þeir góðu lífi. Eg undraðist vizku hennar og þagði. Á torgi einu miklu sá eg hóp af fólki safnast saman

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.