Skinfaxi - 01.10.1936, Blaðsíða 62
158
SKINFAXI
Farfuglafundir.
Nokkur undanfarin ár hefir U.M.F. Velvakandi staðiö fyrir
hinum svonefndu farfuglafundum, sem haldnir eru að vetr-
inum hér í Reykjavík. Annars eru fundir þessir á vegum Ung-
mennasambands Kjalarnesþings.
Samkomur þessar eru mjög vinsælar og hafa á sér þann
svip, sem er Ungmennfélögunum til sóma.
Venjulega er fundur einu sinni i mánuði hverjum, og er
þá auglýstur i blöðum bæjarins með nokkurra daga fyrir-
vara. Fundi þessa er ætlazt til að sæki aðallega ungmenna-
félagar utan af landi, sem staddir eru hér í bænum, gamlir
ungmennafélagar og aðrir unnendur samtakanna.
Þetta eru því kynningar- og fræðslusamkomur, þar sem ung-
mennafélagar víðsvegar að geta rætt og fræðzt um áhuga-
mál sín.
Aðsókn að samkomum þessum fer vaxandi með ári liverju,
og nú er svo komið, að til vandræða horfir, vegna þess að
félagið hefir takmakað húsnæði til umráða.
Auðvitað sækir margt gott fólk þessar samkomur, sem
stendur utan við ungmennafélagasamtökin, en það verður
eðlilega fyrst frá að hverfa, þegar húsrúm þrýtur. Annars
standa þeim opnar dyr i ungmennafélaginu Velvakandi, sem
sækja vilja þessa fundi eða tka þátt í annarri starfsemi fé-
lagsins.
Meðal annars af téðum ástæðum hefir þess verið farið á
leit við stjórn U.M.F.Í., að hún sendi öilum ungmennafélög-
um á landinu félagsskírteini.
Aðeins þeir, sem sannað geta tilveru sína í einhverju ung-
mennafélagi, eiga vís'an aðgang að Farfuglafundunum, á kom-
andi vetri.
Ungmennafélagar! Munið, að útvega ykkur félagsskírteini.
Skúli Þorsteinsson
(form. U.M.S.K.).
Kátir krakkar heitir nýútkomið kver með barnaljóðum eftir
Katrínu Árnadóttur, skreytt myndum eftir Tryggva Magnús-
son. Ljóðin eru lipur og barnaleg og verða vafalaust vinsæl.