Skinfaxi - 01.05.1943, Page 81
SKINFAXI
83
rími fléttað i frásögnina. Á hún að geta orðið hugfólgin og
þroskandi dœgradvöl, þótt hún heiti Ekki neitt. Höfundur
hennar, Wanda Gág, er mjög kunnur barnabókahöfundur og
teiknari í Amerílui. Stefán Júlíusson kennari í Hafnarfirði
hefir þýtt hana af mikilli smekkvísi og næmum skilningi á
lesefni barna, enda hefir hann samið margar barnabækur,
sem hlotið hafa einróma vinsældir.
Fuglinn fljúgandi, heitir kvæðasafn handa börnum, sem h.f.
Leiftur hefir nýlega sent á bókamarkaðinn. Höfundur þess er
Kári Tryggvason kennari i Víðikeri í Bárðardal. Barbara W.
Árnason listmálari hefir gert teikningar, er fylgja hverju
kvæði, en þau eru 37 að tölu.
Kvæðin eru sýnilega ort, til þess að glæða skilning barn-
anna á fjölbreytni og fegurð fuglanna, söng þeirra og unaðs-
semdum. Lesandinn finnur brátt að þetta hefir tekizt og
verða kvæðin og myndirnar, sem eru afbragðs vel gerðar,
aðlaðandi fyrir börnin. Útgáfan er á allan hátt hin vand-
aðasta. D. Á.
Vaxtarrækt. Eftir Jón Þor-
steinsson íþróttakenn-
ara. Reykjavík 1943.
Þessi stuttorða bók um
mikið og vandasamt efni,
er vandlega hugsuð og
hver kafli ígrundaður og
veginn á vog reynslunnar.
Mörg undanfarin ár hef-
ur Jón Þorsteinsson séð
þörfina á að opna augu
manna á orsökum líkams-
lýta og lcenna ráð til þess
að fyrirbyggja þá með
styrkjandi æfingum, og að
varast sé ýmislegt, sem
veldur beinaskekkjum.
Fyrstu kaflar bókarinn-
ar eru leiðbeiningar og
fræðsla um hrygginn og
skekkjuorsakir og greina-
gjörð fyrir hinum ýmsu
likamslýtum, sem leikmenn
geta greint. Þá koma kaflar
Jón Þorsteinsson.