Skinfaxi - 01.04.1950, Page 2
2
SKINFAXl
Ungmennafélag Reykjavíkur
'UiÍtal uú parma.nn.inn, Stepán Runótfi
óóon.
Á undanförnum árum hef-
ur Ungmennafélag Reykja-
víkur haft með höndum all-
umfangsmikla starfsemi, og
hefur starfsemin enn aukizt
á þessum vetri. — Þar sem
mér þótti sennilegt, að les-
endum Skinfaxa léki nokkur
forvitni á að fræðast um
þetta unga félag í höfuð-
staðnum, sneri ég mér til
formannsins, Stefáns Run-
ólfssonar frá Hóhni, og bað
hann að segja mér frá félagsstarfinu. Formaðurmn tók
því vel sem vænta mátti, og fara hér á eftir nokkur
atriði úr samtali okkar.
— Hvað eru margir félagar í Ungmennafélagi
Reykjavíkur?
— Þeir munu nú vera hátt á fjórða hundraðinu.
Annars er ekki gott að segja um það nákvæmlega, því
að um þessar mundir eru sífellt að bætast nýir félagar
í hópinn.
—- Er ekki erfitt að halda svo fjölmennu félagi
saman hér í höfuðstaðnum, þar sem fjarlægðir eru
orðnar svo miklar?
— Jú, að vísu má segja það. En starl'semi félagsins
fer að mestu fram í deildum eða flokkum, og eru þær
í rauninni nokkuð sjálfstæðar hver um sig.
— Og hvers konar starfsemi hafa þessir flokkar
með höndum?
Stefán Runólfsson.