Skinfaxi - 01.04.1950, Side 3
SKINFAXl
3
Glímuflokkur Ungmennafélags Reykjavíkur 1950.
Kennari Lárus Salómonsson.
— Aðallega íþróttir. Meðan félagið byggði eingöngu
á fundahöldum og slíkri almennri félagsstarfsemi,
varð því ekki mikið ágengt, og það óx i rauninni ekki.
Fyrstu árin mátti því heita, að félagið væri fremur
lítils megnugt. En fyrir 3 eða 4 árum tók félagið
íþróttir á stefnuskrá sína, og upp frá því hefur það
blómgvast jafn og þétt. Að mínu áliti er ekki fært að
halda saman almennu æskulýðsfélagi í Reykjavík, nema
það byggi á einhverju ákveðnu málefni, eða hafi með
höndum starfsemi, sem unga fólkið getur orðið virkur
þátttakandi í. Þess vegna tókum við upp íþróttimar.
— Hverjar em svo þessar deildir eða flokkar innan
félagsins ?
— Þær eru þessar: Glímudeild, vikivakadeild, íþrótta-
deild karla og íþróttadeild kvenna. En þó að ég tali
hér um þessa skiptingu í stórum dráttum, má þó
segja, að deildirnar séu enn fleiri, því að innan íþrótta-