Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 6
6
SKINFAXI
semi sína, og er draumur okkar að sjálfsögðu að koma
upp eigin félagsheimili. Undanfarið höfum við haft
skemmtanir í Mjólkurstöðinni, en þegar við fengum
ekld lengur inni þar, réðumst við í að taka Listamanna-
skálann. Þurftum við að búa hann húsgögnum og
ýmsum nauðsynlegum hlutum, svo að stofnkostnaður
varð töluverður. Samt standa vonir til, að félagið fari
vel úr úr þessu og komist á öruggan fjárhagslegan
grundvöll. Mun þá skemmra í land, að félagið geti
reist sitt eigið heimili.
— Er það mál komið á nokkurn verulegan rekspöl?
— Eiginlega ekki. Samt eru líkindi til, að félagið
fái lóð í Laugardalnum, og dálítið fé er þegar í hús-
sjóði. Félagið hefur beitt sér mjög kröftuglega fyrir
æskulýðshallarmálinu og er þátttakandi í B.Æ.R., enda
átti sofnandi U.M.F.R., Aðalsteinn heit. Sigmundsson,
hugmyndina að æskulýðshöllinni. Samt er stjórn fél.
ljóst, að einstök félög verða að koma sér upp sinum
eigin heimilum, því að æskulýðshöllin mun fremm-
verða miðstöð og samkomustaður alls æskulýðs höfuð-
staðarins, en síður miða starfsemi við einstaka hópa
og félög.
— Mér leikur meiri forvitni á að heyra um starf-
semi ykkar í Listamannaskálanum. Það er náttúrlega
fvrst og fremst skemmtistarfsemi?
— Já, vitanlega. En við höfum sett okkur það mark.
að skemmtanir félagsins séu með þeim myndarbrag,
að sómi verði að. Þessar skemmtanir eru með ýmsu
sniði, kvöldvökur, gestamót og almennar danssam-
komur, bæði eldri og nýju dansarnir. Það var upp-
runalega tilgangur félagsins að hafa stöku sinnum
gestamót fyrir fólk utan af landi, sem er á ferð
eða dvelur i bænum um stundarsakir, bæði ung-
mcnnafélaga og aðra. Teljum við sjálfsagt að halda
þessari starfsemi áfram, og höfum við reynt að vanda
íil þessara móta. Höfum.við fengið marga þjóðkunna