Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 7
SKINFAXI
7
Fimleikaflokkur kvenna.
Kennari GuSmundur Þórarinsson.
listamenn, söngvara og leikara, til að skemmta á þeim
og kvöldvökunum. Þá eru kvikmyndasýningar, og
einnig sýnir vikivakaflokkurinn og glímuflokkurinn á
þessum skemmtunum.
—- Já, þannig styður livað annað hjá ykkur. En hvað
er að segja um hinar almennu danssamkomur? Er ekki
afar erfitt að halda uppi slíkum skemmtunum, svo í
lagi sé?
— Það læt ég vera. Við höfum yfirleitt gott eitt um
það fólk að segja, sem þessar skemmtanir sækir. Og
við ættum að fá af þessu nokkra reynslu, því að sam-
komur eru fjórum sinnum í viku í Listamannaskálan-
um, og eru þær mjög vel sóttar. Við höfum bannað
áfengi og áfengisneyzlu á þessum skemmtunum. Höf-
um við eftirlitsmenn, sem fylgjast með því, að ekki sé
út af brotið. Ef upp kemst, að einhver hefur eigi að
síður gerzt sekur urn áfengisneyzlu, reynum við að