Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 8
8
SKINFAXl
Vikivakaflokkur U.M.F.R.
Kennari Júlía Helgadóttir.
tala við hann og hafa þau áhrif á hann, að hann af-
hendi pelann. Eru dæmi til þess, að piltur hafi koniið
drukkinn á skemmtun, en á næstu skemmtun kom
hann ódrukkinn. Er gleðilegt til þess að vita. En það
er mark okkar og mið, að á þessum skemmtunum
læri unga fólkið, að vel er hægt að skemmta sér án
áfengis.
— Þetta er áreiðanlega hið merkasta hlutverk og
síður en svo lítilfjörlegt hlutskipti, ef vel tekst. En
hvernig er svo stjórnin skipuð hjá ykkur?
— Aðalfundur er jafnan á haustin, og þá er stjórn
kosin eins og lög gera ráð fyrir. Er það sjö manna
stjórn, og á einn fulltrúi frá hverri af fjórum deild-
um félagsins jafnan sæti í stjórninni, venjulega for-
maður deildarinnar. Félagsformaður er kosinn sér, en
að öðru leyti er stjórnin kosin í einu lagi, og skiptir
hún sjálf með sér verkum.
— Og hverjir eiga nú sæti í stjórninni með þér?