Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 25
SKINI'AXI
25
Hlíðar vaxnar barrskógi. JarSvegur mjög ófrjór. Frá Noregi.
að 600 plöntur á dag, við góðar aðstæður. En ef reiknað
væri með aðeins helmingi þess, vegna þess að allir
væru óvanir, og áætlað, að hver maður plantaði 300
plöntum á dag, færu alls 6000 —- sex þúsund — dags-
verk árlega í gróðursetningu plantna á þessa 250
300 ha. Hér er þó farið mjög varlega í sakirnar, því
þessi skógivöxnu svæði í Norður-Noregi, sem tekin
eru til hliðsjónar, liggja að stórum hluta á norðlægari
breiddargráðum en Island. Það er mjög liklegt, að
skógar muni hafa betri vaxtarskilyrði hérlendis en
þar, bæði vegna þess, að sumur eru hér lengri og jarð-
vegur hér á landi tvímælalaust frjórri en víða þar.
Kæmi það sérstaklega að góðum notum fyrir grenið,
sem að öllum jafnaði gerir hærri kröfur til jarðvegs-
ins en furan. Það er vel hugsanlegt, að hagkvæmasta
skóggræðslu aðferðin við furuna hérlendis, myndi verða
að dreifsá henni á svæði það, sem hún skal vaxa á.
Við það myndi sparast öll vinna við gróðursetningu