Skinfaxi - 01.04.1950, Page 27
SKINFAXI
27
Norskur barrskógur. JarSvegur mjög rýr. PlantaÖ fyrir 50 árum.
hafa til umráða kringum 30000 ha. Af því mun um
3500 ha. vera vaxið skógi og kjarri. En talið er, að
kjarrivaxin svæði á landinu séu samtals 10000 ha
Þessar tölur gefa okkur bendingu um, að þarna sé
gott grunnlag fyrir hendi, til þess að byggja fram-
tíðarstarfið á.
Fram að þessu hefur það verið erfiðleikum bundið
að útvega fræ barrviða frá heppilegum stöðum til sán-
ingar i uppeldisstöðvarnar hérlendis. Verðlagið á þeim
plöntum, sem fengizt hafa keyptar frá skógræktar-
stöðvunum, hefur einnig verið það hátt, að ekki er
hægt að búast við því, að almenningur kaupi þær í
stórum stíl. En nú mun mega vænta þess, að úr rakni
með útvegun fræsins, og við fjöldaframleiðslu á plönt-
um ætti verðlag þeirra að lækka, og það verður að
lækka, svo enginn þurfi að fælast frá því að kaupa
barrviðarplöntur til gróðursetningar, vegna óhóflegs
vei’ðlags. Alltaf verður að reikna með afföllum á hin-