Skinfaxi - 01.04.1950, Side 29
SKINFAXt
29
að koma til móts við Skógrækt ríkisins, sem yrði hinn
ráðgefandi aðili. Ungmennafélagarnir víðs vegar um
landið, hinar fjölmörgu starfsfúsu hendur, eiga svo
að framkvæma verkið, gróðursetninguna.
Félagar í U.M.F.I. eru nú nálægt 10,000. Það yrðu
ósköp lítil útlát, fyrir hvern einstakan, þó hann fórn-
aði t. d. einum frídegi á vori til þess að gróðursetja
trjáplöntur. En það þýddi bara það, að þarna fengjust
10,000 dagsverk á ári. Þetta er mikil orka, sem gæti
komið miklu góðu til leiðar, ef henni er beint að einu
ákveðnu markmiði.
Þjóðin leggur nú árlega fram mikið fé til fræðslu-
mála í landinu. Þar nýtur góðs af fjöldi unglinga.
Væri það nokkuð illa til fundið, þó þetta æskufólk
fórnaði einum vordegi á ári, til þess að gróðursetja
skógarplöntur í íslenzkri mold? Um leið og þetta yrði
þakklætisvottur, framkvæmdur í verki, yrði það líka
áreiðanlega kærkomin upplyfting, eftir hina lang-
þreytandi skólabekkjasetu vetrarins.
Áður er að því vikið, að það þyrfti 6000 dagsverk
til þess að gróðursetja trjáplöntur í 300 ha. Það er
því augljóst, að árlega væri hægt að gróðursetja í allt
að helmingi stærra land, ef allir ungmennafélagar og
annað skólaæskufólk ynni að því einn dag.
Fyrir ungmennafélaga gæti þetta orðið skemmtilegur
samkomudagur, um leið og fólkið hittist 1 starfi, sem
er fullkomlega í samræmi við grundvallarhugsjón
ungmennafélaga. Starfi, sem vissa er fyrir, að muni
bera ríkulegan ávöxt í framtíðinni, landi voru til
gagns og blessunar.
Meðal ungmennafélaga víða um land ríkir nú ein-
hver deyfð í félagsstarfinu. Hver er orsökin? Er það
af því, að hin ýmsu félög koma ekki auga á verk-
efnin? Eða er það vegna þess, að æska þessa lands
hefur misst hinn dýrmæta eiginleika: að verða snortin
af viðfangsefnunum, djörfum hugsjónum, sem bíða