Skinfaxi - 01.04.1950, Page 30
30
SKJNFAJU
þess að verða bornar fram til sigurs? Látið það ekki
ásannast, ungmennafélagar! Eitt þessara viðfangsefna
eru skógræktarmálin. Takið föstum, öruggum tökum
á þeim, og berið þau fram til sigurs. Með því vinnið
þið landi og þjóð ómetanlegt gagn, í anda sannra
ungmennafélagshugsjóna. Ef hin uppvaxandi kynslóð
nútimans ríður á vaðið, reisir hún sér um leið hinn
veglegasta minnisvarða, sem aldrei mun tortímast. En
sá minnisvarði er: Að hún skildi fyrst, og starfaði
fyrst eftir setningunni: „Fagur er dalur og fyllist
skógi. .. .“
Island allt!
Ungmennafélagar.
Minningarrit U.M.F.Í. 1906—1936, fæst enn hjá sambandinu.
Þeir, sem enn liafa ekki eignazt þessa fróÖlegu bók um fyrstu
30 ár Umf. ættu að tryggja sér hana strax, þvi eftir eru að-
eins fá eintök.
Ungmennafélagar.
Vinnið ötullega að aukinni útbreiðslu Skinfaxa. Fáið unga
fólkið, sem er að ganga í félögin til þess að gerast áskrifend-
ur. Sendið afgreiðslunni jafn óðum nöfn þeirra. Takmarkið
er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Ef
helmingur allra Uæf. i landinu gerðust áskrifendur að Skin-
faxa, gæti hann stækkað um lielming, án þess að hækka í verði.
Skinfaxi.
Þeir, sem enn hafa ekki greitt árgang 1949 eða eldri árganga,
eru vinsamlega beðnir að gera það strax til stjórnar ung-
mennafélagsins í byggðarlagi sínu, sem sér um innheimtuna.
Árgangurinn kostar kr. 10,00. Gjalddagi er 1. október.
Þeir, sem ekki eru áskrifendur innan ungmennafélaganna,
sendi áskriftargjaldið til innheimtunnar í póstliólf 406, Reykja-
vík. Þangað ber að senda öll erindi varðandi afgreiðslu og
innheimtu Skinfaxa.