Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 30

Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 30
30 SKJNFAJU þess að verða bornar fram til sigurs? Látið það ekki ásannast, ungmennafélagar! Eitt þessara viðfangsefna eru skógræktarmálin. Takið föstum, öruggum tökum á þeim, og berið þau fram til sigurs. Með því vinnið þið landi og þjóð ómetanlegt gagn, í anda sannra ungmennafélagshugsjóna. Ef hin uppvaxandi kynslóð nútimans ríður á vaðið, reisir hún sér um leið hinn veglegasta minnisvarða, sem aldrei mun tortímast. En sá minnisvarði er: Að hún skildi fyrst, og starfaði fyrst eftir setningunni: „Fagur er dalur og fyllist skógi. .. .“ Island allt! Ungmennafélagar. Minningarrit U.M.F.Í. 1906—1936, fæst enn hjá sambandinu. Þeir, sem enn liafa ekki eignazt þessa fróÖlegu bók um fyrstu 30 ár Umf. ættu að tryggja sér hana strax, þvi eftir eru að- eins fá eintök. Ungmennafélagar. Vinnið ötullega að aukinni útbreiðslu Skinfaxa. Fáið unga fólkið, sem er að ganga í félögin til þess að gerast áskrifend- ur. Sendið afgreiðslunni jafn óðum nöfn þeirra. Takmarkið er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Ef helmingur allra Uæf. i landinu gerðust áskrifendur að Skin- faxa, gæti hann stækkað um lielming, án þess að hækka í verði. Skinfaxi. Þeir, sem enn hafa ekki greitt árgang 1949 eða eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að gera það strax til stjórnar ung- mennafélagsins í byggðarlagi sínu, sem sér um innheimtuna. Árgangurinn kostar kr. 10,00. Gjalddagi er 1. október. Þeir, sem ekki eru áskrifendur innan ungmennafélaganna, sendi áskriftargjaldið til innheimtunnar í póstliólf 406, Reykja- vík. Þangað ber að senda öll erindi varðandi afgreiðslu og innheimtu Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.