Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 31
SKINFAXI
31
_S^tefán J}aóonaróon, '\Jorial>œ:
FELAGSLUNDUR
(Grein sú, er hér fer á eftir, er samin af formanni Umf. Sam-
hygðar í Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu. Lýsir hún vel
merkum þætti í starfssögu félagsins og rekur þennan þátt mjög
glögglega. — Er þetta þakkavert, og mættu aðrir forystumenn
Umf. viðs vegar á landinu taka þetta til athugunar. Fjölmörg
félög hafa með höndum starfsemi, sem fyllilega er frásagnar-
verð, og tekur Skinfaxi slíkum frásögnum með þökkum. Er
vonandi, að á eftir þessari grein komi margar af svipuðum
toga spunnar — Ritstj.).
Umf. Samhygð var stofn-
að þann 7. júní 1908. Aðal
livatamaður að stofnun þess,
og fyrsti formaður, var Ingi-
mundur Jónsson frá Holti,
nú kaupmaður í Keflavík.
I afmælishófinu, er félag-
ið minntist 40 ára afmælis-
ins, mættu á annað hundrað
eldri og yngri félaga. Þar á
meðal 15 af stofendum þess.
Bárust félaginu fjöldi heilla-
óska á afmælinu og ýms-
ar góðar gjafir, frá stofnendum þess og öðrum vel-
unnurum. Kom þar fram sá hlýhugur og vinsemd, er
félagið á hvarvetna að mæta, bæði innansveitar og ut-
an. Er slík vinsemd í garð félagsins mjög mikilsverð
og til hvatningar þeim, er nú bera hita og þunga félags-
starfsins.
Eitt af fyrstu verkefnum Umf. Samhygðar, eftir að
það hóf starf sitt, var að eignast „þák yfir liöf-
uðið“. Sú hugsjón félagsins varð að veruleika árið 1912.
Stefán Jasonarson.