Skinfaxi - 01.04.1950, Side 32
32
SKINFAXI
Það ár eignaðist félagið sitt eigið hús, timburhús,
járnvarið, er kostaði fullgert um 700,00 krónur. Þetta
hús, sem þótti mikil bygging á sínum tíma, byggði fé-
lagið algjörlega án nokkurs styrks eða hjálpar annars-
staðar frá. Tvívegis var þetta hús stækkað, þar eð þörf-
in á auknu húsnæði óx sífellt með vaxandi starfi fé-
lagsins. Þó kom að því, að hið gamla hús reyndist of
lítið og var þvi hafizt handa með byggingu á nýju húsi
árið 1945. Hélt félagið fyrsta fund sinn í nýja húsinu
þ. 22. júni 1947.
Nýja húsið, er hlaut nafnið „Félagslundur“, var að
mestu fullgert á s.l. ári og vígt hátíðlega þ. 12. júní
1949.
Vegna þess að Félagslundur mun vera eitt af fyrstu
félagsheimilunum, sem byggt er og nýtur styrks, skv.
lögum frá Alþingi um félagsheimilasjóð, og ýmsir
liafa óskað eftir að fá upplýsingar um fyrirkomulag
þess og starfrækslu, tel ég rétt að biðja „Skinfaxa“
fyrir örfáar línur um þetta efni.
Arið 1946 má með réttu kalla merkisár í húsnæðis-
málasögu ungmennafélaganna. Á Alþingi það ár flytja
þeir Bjarni Ásgeirsson og Páll Þorsteinsson frumvarp
J)ess efnis, að ríkið greiði 40% af byggingarkostnaði
félagsheimila, er umf. og önnur hliðstæð félög byggja.
Þótt frumvarp þetta næði ekki fram að ganga á því
ári, var eigi að síður merkum áfanga náð. — Isinn var
hrotinn. — Málið var komið inn á löggjafarsamkomu
þjóðarinnar og þjóðin fylgdist af áhuga með hversu
því reiddi af.
Enda leið ekki á löngu þar til lögin um félagsheim-
ilasjóð voru samþ. á Alþingi, að vísu í nokkuð annarri
mynd en hið fyrsta frumvarp gerði ráð fyrir.
Félagslundur er, eins og fyrr segir, byggður samkv.
lögum um félagsheimilasjóð. Gólfflötur hússins er um
250 m2. I húsinu er samkomu- og íþróttasalur 7,7x12 m