Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 33
SKINFAXI
33
Félagslundur.
ásamt leiksviði 4x7,7 m, rúmgott anddyri og fata-
geymslur karla og kvenna með tilheyrandi snyrtiher-
bergjum. Ennfremur er í húsinu: Borðstofa (áföst við
samkomusalinn), eldhús, bókaherbergi og búnings-
herbergi íþróttafólks og steypiböð. Undir leiksviði er
rúmgóð geymsla og herbergi fyrir leikendur. Einnig
er í kjallara miðstöðvarherbergi, kolageymsla o.fl.
Yfir eldhúsi og búningsherbergi íþróttafólks eru 2
herbergi, hentug til smærri funda og þess háttar.
Um s.l. áramót var byggingarkostnaður Félagslund-
ar um kr. 365.000,00. Þar með eru taldir húsmunir í
samkomusal og borðstofu, einnig eldhúsáhöld og fleira.
Hefur hann verið greiddur þannig:
Félagsheimilissjóður hefur greitt 40% af byggingar-
kostnað hússins. Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps hef-
ur, þegar þetta er ritað, lagt fram kr. 15.000,00. Umf.
Samhygð hefur greitt kr. 91.123,37 og hreppurinn
einnig kr. 91.123,37. Auk þess hefur verið lögð fram
gjafavinna við bygginguna, er nemur um kr 25.000,00.
3