Skinfaxi - 01.04.1950, Page 35
SKINFAXl
35
samtök fólksins fá áorkað, þar sem allir stefna að einu
og sama marki.
Við, sem nú störfum í Umf. Samhygð, getum horft
vongóð fram á veginn. Húsnæðismál félagsins, sem
hefur Verið „mál málanna“ hjá félaginu, allt frá fyrstu
tið, er nú að þvi er virðist, komið í örugga höfn um
alllanga framtíð. Félagið getur þá af alefli snúið sér
að öðrum viðfangsefnum í framtíðinni. Eitt af þeim
er bygging íþróttavallar, sem félagið er nú byrjað á
hjá Félagslundi, og hefur þegar lagt til hans allmikið
fé og vinnu. Þá hefur félagið látið gera uppdrátt að
lóðinni kringum Félagslund og barnaskólann (hús-
in standa skammt hvort frá öðru). Er þarna mikið
verk óunnið. En — „margar hendur vinna létt verk“.
Svo mun reynast hér. Ungmennafélagið, kvenfélagið
og sveitin öll mun sameinast um að fegra og prýða
umhverfi hinna nýbyggðu húsa, planta þar skógi, —
skapa þar sannkallaðan „Félagslund“, — lund, sem á
ókomnum árum mun vaxa og þroskast til yndis og
ánægju þeim, er þar lögðu hönd að verki.
Ég trúi því, að okkar „Félagslundur“ vei’ði meira en
nafnið eitt, — aðeins hús úr steinsteypu og nokkrar
hríslur hér og þar. — Ég trúi því, að hann verði sá
„gróðurreitur“ sveitarinnar, sem eldri og yngri byggja
UPP °g hlúa að, og sameinist þar í íþróttum, leik og
starfi.
Ritað í marz 1950.
Stefán Jasonarson.
3*