Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 39
SKINFAXI
39
1 gömlum samkomuhúsum fer varla hjá því, að
vér rekum augun í einhverja ágalla.
1. Hæðin á leikpallinum er ekki i réttu hlutfalh
við stærð og lögun samkomusalsins.
2. Lofthæðin yfir sjálfu leiksviðinu er of lítil.
3. Leiksviðsopið er of lítið, þröngt eða lágt.
4. Leiksvæðið á pallinum er þröngt eða of mjótt
frá fótljósum að bakvegg.
Til að sniða verstu vankantana af leiksviði, sem hef-
ur þá alla, sem hér voru taldir, hefur víða verið
gripið til þess óyndisúrræðis og svo sem í sparnaðar-
skyni að smíða „fasta scenu“ á leiksviðinu, tiðast
stofu með dyrum sitt til hvorrar handar og glugga á
miðjum bakvegg. Við þetta þrengist leiksviðið enn þá
meir og töf er að því að taka ofan stofuna, ef leikritið
krefst útisviðs að auki. Þar sem leiksviðið er bæði
litið og óhentugt, þarf annaðhvort, að nota skásetta
hliðarfleka (líka í „inni-scenum“) og loftkappa eða
koma sér upp „hlutlausum“ tjöldum, reflum (draperi),