Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 42
42
SKINFAXI
hvernig verður leik-
sviði komið fyrir á
hagkvæmasta hátt í
samkomusalnum eða
félagsheimilinu og
þannig, að það komi
hinum ýmsu greinum
félagsstarfsins að sem
mestum notum ?
Þessari spurningu er
ekki vandalaust að
svara þar eð aðstæð-
ur allar eru með svo
ólíku móti á hinum
ýmsu stöðum. Þegar
öllu er til skila haldið
veltur svarið á því,
hvort leiklistin situr í
fyrirrúmi hjá þeim,
4. mynd. sem ætla að nota
samkomuhúsið, eða
hún sé hornreka og húsið byggt fyrir danssamkomur,
leikfimisæfingar eða eitthvað svipað, sem þarf mikið
gólfpláss.
Telja verður, að leiksvæði 5x4 m. að stærð nægi
til sýninga á flestum þeim leikritum, sem hér koma
til greina. Leiksviðið allt þarf þó að vera talsvert
stærra, og gefur 6. mynd nokkra hugmynd lun heppi-
leg hlutföll á milli leiksvæðis og athafnasvæðis „að
tjaldabaki“. Hér er áhorfendasalur 8 m. breiður og
þyrfti hann þá að vera 10 til 14 m. langur. I fyrra
tilfellinu og ávallt, þegar lítill munur er á lengd og
breidd salarins myndi nægja 70 sm. hæð á leikpalli,
í síðarar tilfellinu þarf pallurinn að vera hærri, 80-—
100 sm., svo að vel sjáist til leikenda frá aftari sætum
í salnum. Ekki er nauðsynlegt, að leikpallinum lialli