Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 46
46
SKINFAXI
(Jr skýrslu íþróttanefndar
ríkisins 1946—’49.
íþróttanefnd ríkisins, sú er lauk störfum um síðustu ár«t-
mót, hefur sent frá sér ítarlega skýrslu um hag og framkvæmd-
ir íþróttamálanna 1946—’49. Þessi stórfróðlega skýrsla skipt-
ist í 12 kafla, sem heita:
1. Skipun íþróttanefndar.
2. Skipun iþróttafulltrúa.
3. Sérfræðileg aðstoð.
4. Greinargerð um íþróttamannvirki. Hún er um: Sundlaug-
ar, íþróttahús, baðstofur, skíðaskála og skiðabrautir,
íþróttavelli.
5. íþróttanám.
6. íþróttaáhöld.
7. Greinargerð um byggingarkostnað íþróttamannvirkja,
styrki til þeirra og fleira .
8. Fjárveitingar úr iþróttasjóði.
9. Getraunastarfsemi.
10. Félagsheimili.
11. Félagsmál.
12. Álirif íþróttalaganna. Ræðir þar einkum um sund- og fim-
leikakennsluna i barnaskólum og framhaldsskólum.
Margir þættirnir í skýrslunni rekja gang íþróttamálanna
frá því að íþróttalögin voru sett, og raunar lengur, að því er
tekur til ýmissa íþróttamannvirkja.
Fjórði kafli gefur glöggt yfirlit um fjölda íþróttamannvirkja
í hverri grein og rekstur sundlauga á liinum ýmsu stöðum í
landinu. Sundlaugar eru alls 66 og þar af era 16 yfirbyggðar.
Þar að auki eru 17 sundstaðir, sem nokkuð hafa verið notaðir
til sundkennslu, þótt ekki teljist sundlaugar. Mjög athyglis-
verð og nákvæm skýrsla er birt um rekstur sundlauga í 7
kaupstöðum landsins og Reykjavík. Skulu hér tvö atriði henn-
ar birt: Fjöldi afgreiddra baða á viðkomandi stöðum og kostn-
aður á hvert bað.
Sundhöll Reykjavikur: 203756 böð, hvert bað kostar raun-
legulega kr. 3,50. Sundl. Akraness: 21329 böð, kostnaður kr.
2,22. Sundh. ísafjarðar: 47785 böð, kostnaður kr. 3,64. Sund-
laug Ólafsfjarðar: 18188 böð, kostnaður kr. 1,45. Sundh. Seyð-
isfjarðar: 8318 böð, kostnaður kr. 7,39. Sundl. Neskaupstaðar: