Skinfaxi - 01.04.1950, Qupperneq 56
56
SKINFAXI
ur Kristinsson Núpi. 1939—1947: Guðmundur Gíslason Höfða.
1947: Sigurður Guðmundsson Hjarðardal. 1948 og siðan: Ingi-
björg Jónsdóttir Gemlufalli.
Féhirðir 1935—1947: Valdimar Kristinsson Núpi. 1947 og
siðan: Davíð H. Kristjánsson Neðri-Hjarðardal.
Hverjir hafa verið fulltrúar félagsins á fjórðungs- og liér-
aðsþingum U.M.F. Vestfjarða, verður ekki rakið hér. Lengi
var stjórn U.MF. Vestfjarða skipuð sömu mönnum og stjórn-
uðu U.M.F. Mýrahrepps, að öllu eða meiru leyti. Sýnir það
eitt, að þetta ungmennafélag hefur átt mikinn þátt i starfsemi
Sambands U.M.F. Vestfjarða.
Þá ferðuðust menn frá þessu félagi á milli héraðssambands-
félaganna, til fyrirlestrahalds og annarrar kynningarstarfsemi.
Nú hefur að nokkru verið rakin stjórnarsaga U.M.F. Mýra-
hrepps, og ofurlitið skyggnzt um hversu handleiðslu sumra
þessara stjórnenda var háttað.
Þó að fundahöld, og andleg starfsemi á fundum félagsins.
sé fyrirferðamesti þátturinn i starfsemi félagsins, þá fer því
þó fjarri að ekki liafi félagsstarfið margbrotnara verið, eða i
fleiri horn liafi verið litið. Verður þó starfsmálasaga félags-
ins ekki rakin hér, á annan hátt en þann, að aðeins verður
drepið á það helzta.
Félagsblað.
Vil ég þá fyrst nefna félagsblaðið Viljann. Þegar á 2. fundi fé-
lagsins, 22. jan. 1910, hefur Guðm. Hermannsson máls á, að menn
yrðu að hafa blað, til þess að æfa sig að rita í, eins og
málfundi að æfa sig að tala. Bar hann fram þá tillögu að
gefið sé út blað. Var hún samþykkt, og einnig að fyrsta rit-
nefnd sé skipuð af formanni félagsins, en skipi hún síðan
eftirmenn sína. Hélzt sú tilhögun lengst af. Fyrsta tölublað
Viljans kom þegar út á næsta fundi. Ritnefnd: Bjarni ívarsson,
Guðrún Friðriksdóttir, Kristinn Guðlaugsson. Kom Viljinn
siðan út áratugum saman, reglulega á hverjum fundi að ég
hygg.
Reglan var, að allir sem rituðu í blaðið, skrifuðu undir
fullu nafni. Hygg ég að margt væri betra hjá okkar þjóð,
hefði þeirri reglu alls staðar og ævinlega verið fylgt.
Þegar Viljinn hafði fyrst fataskipti, þ. e. fyrsta innbundua
bók hans var útskrifuð, voru þessi orð skrifuð i seinustu
greininni í bókinni, af þeim sem þetta ritar:
„Ég hef fylgzt nokkuð mikið með blaðinu, á þessum 11
ára áfanga, og þori að fullyrða að ritnefndir liafa mjög