Skinfaxi - 01.04.1950, Page 61
SKINFAXI
61
Fréttír og félagsmál.
Nýtt félag í U.M.F.Í.
Umf. BessastaSahrepps á Álftanesi hefur gengið í U.M.F.Í.
Félagið er stofnað árið 1939. Félagsmenn eru 30. Stjórn þess
skipa: Ármann Pétursson, Eyvindarholti, formaður, Árni Bj.
Gunnlaugsson, Brekku, ritari, Helgi Jónsson, Bjarnastöðum,
gjaldkeri.
Minningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar.
Hann nemur nú kr. 28.517.04. Auk vaxta á árinu, bættust
sjóðnum kr. 700.00 i gjöfum og áheitum. Umf. eru enn sem
fyrr minnt á þennan eina sameiginlega menningarsjóð ung-
mennafélaganna. Stjórn U.M.F.Í. tekur á móti framlögum í
sjóðinn.
hús, setti hann það skilyrði, að U.M.F. Mýrahrepps ætti rétt
á að halda þar 4 fundi á ári ókeypis.
Fleira mætti segja um starfsemi félagsins, en þetta verður
að nægja að sinni.
Áhrif.
Þrátt fyrir öra fólksfækkun í sveitinni á síðari árutn, hefttr
félagið reynt að halda í horfinu og tekizt það vel, þegar að-
stæður eru athugaðar. Félag þetta hefur nú um 40 ára skeið
verið virkur gjörandi í þessari sveit, aukið menningarlíf henn-
ar, bæði andlega og verklega, þjálfað félagsmenn sína til
fyllri starfshæfni, hver svo sem notið hefur starfskrafta
þeirra, og aukið manndóm þeirra. Spora félagsins gætir víðar
en í fljótu bragði virðist.
Hér^sveitinni er fjölbreytt og margþætt félagsstarfsemi, i
svo Jínlli sveit að vera.
Starfsemi U.M.F. Mýrahrepps hefur gert sitt til að æfa
starfskrafta þessara félaga, sem öll vinna sveitarfélaginu gagn
og auka hróður þess.
Ég minnist þess, að endingu, að félag þetta á einum manni
mest að þakka, þ. e. Birni Guðmundssyni. Þökk sveitarinnar til
félagsins sé um leið þökk til hans, sem lengst stýrði því og
stjórnaði.
Blessun guðs sé yfir starfi þessa félags næsta áratuginn,
og um alla framtíð.