Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1950, Page 62

Skinfaxi - 01.04.1950, Page 62
62 SKINFAXI íþróttanefnd ríkisins hefur skipt með sér verkum. Guðmundur Kr. Guðmundsson er stjórnskipaður formaður. Hermann Guðmundsson er ritari og Daníel Ágústinusson gjaldkeri, samkvæmt kjöri á öðrum fnndi hinnar nýskipuðu íþróttanefndar. Skrifstofa Ungmennafélags fslands er að Lindargötu 9A (efstu hæð). Opin á þriðjudögum kl. 10—12 og fimmtudögum kl. 16—19. Þar er afgreiðsla og inn- heimta Skinfaxa. Daniel Einarsson gjaldkeri U.M.F.Í. hefur dvalið í vetur við Bergen tekniske skole, og nemur þar byggingarfræði. Er ráðgert að námið taki tvö ár. Mun Daníel kynna sér störf norskra Umf. eftir föngum. Norræn æskulýðsvika verður haldið í Svíþjóð siðari hluta júnimánaðar i sumar. Verður hún með svipuðum hætti og í Pargas í sumar og að Krogerup sumarið 1948. Taka væntanlega öll Umf. á Norður- löndum þátt i henni. Forvigismenn Umf. i héraðssambönduni eða einstökum Umf. sem hug hefðu á að sækja þessa æsku- lýðsviku ættu að hafa um það samband við U.M.F.Í. ekki síð- ar en 15. maí. Mót þessi eru bæði lærdómsrík og ánægjuleg fyrir áhugamenn í ungmennafélagshreyfingunni 2. hefti Skinfaxa 1941 er uppgengið hjá afgreiðslu Skinfaxa. Umf. munu væntan- lega einhverjir eiga þetta hefti í fórum sínum og eru því vir - samlega beðnir að senda afgreiðslu Skinfaxa það sém til er af því, sem allra fyrst. Skinfaxi fæst að öðru leyti allur frá 1925. 10 ára afmæli íþróttalaganna. íþróttanefnd ríkisins hélt fund í Skátaheimilinu við Hring- braut 23. febrúar og bauð á hann mörgum gestum í tilefni af 10 ára afmæli íþróttalaganna, en það var 12. febrúar síð- astliðinn. Meðal gesta voru: Hermann Jónasson fyrv. forsætisráðherra, sem forustu hafði um setningu iþróttalaganna á sinum tíma, allir sem átt hafa sæti í íþróttanefndinni, bæði sem aðalmenn og varamenn, milliþinganefnd sú, sem lögin samdi, en tveir þeirra eru látnir, Aðalst. Sigm. og Steinþ. Sigurðsson, og var

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.