Skinfaxi - 01.04.1950, Blaðsíða 62
62
SKINFAXI
íþróttanefnd ríkisins
hefur skipt með sér verkum. Guðmundur Kr. Guðmundsson
er stjórnskipaður formaður. Hermann Guðmundsson er ritari
og Daníel Ágústinusson gjaldkeri, samkvæmt kjöri á öðrum
fnndi hinnar nýskipuðu íþróttanefndar.
Skrifstofa Ungmennafélags fslands
er að Lindargötu 9A (efstu hæð). Opin á þriðjudögum kl.
10—12 og fimmtudögum kl. 16—19. Þar er afgreiðsla og inn-
heimta Skinfaxa.
Daniel Einarsson
gjaldkeri U.M.F.Í. hefur dvalið í vetur við Bergen tekniske
skole, og nemur þar byggingarfræði. Er ráðgert að námið taki
tvö ár. Mun Daníel kynna sér störf norskra Umf. eftir föngum.
Norræn æskulýðsvika
verður haldið í Svíþjóð siðari hluta júnimánaðar i sumar.
Verður hún með svipuðum hætti og í Pargas í sumar og að
Krogerup sumarið 1948. Taka væntanlega öll Umf. á Norður-
löndum þátt i henni. Forvigismenn Umf. i héraðssambönduni
eða einstökum Umf. sem hug hefðu á að sækja þessa æsku-
lýðsviku ættu að hafa um það samband við U.M.F.Í. ekki síð-
ar en 15. maí. Mót þessi eru bæði lærdómsrík og ánægjuleg
fyrir áhugamenn í ungmennafélagshreyfingunni
2. hefti Skinfaxa 1941
er uppgengið hjá afgreiðslu Skinfaxa. Umf. munu væntan-
lega einhverjir eiga þetta hefti í fórum sínum og eru því vir -
samlega beðnir að senda afgreiðslu Skinfaxa það sém til er
af því, sem allra fyrst.
Skinfaxi fæst að öðru leyti allur frá 1925.
10 ára afmæli íþróttalaganna.
íþróttanefnd ríkisins hélt fund í Skátaheimilinu við Hring-
braut 23. febrúar og bauð á hann mörgum gestum í tilefni
af 10 ára afmæli íþróttalaganna, en það var 12. febrúar síð-
astliðinn.
Meðal gesta voru: Hermann Jónasson fyrv. forsætisráðherra,
sem forustu hafði um setningu iþróttalaganna á sinum tíma,
allir sem átt hafa sæti í íþróttanefndinni, bæði sem aðalmenn
og varamenn, milliþinganefnd sú, sem lögin samdi, en tveir
þeirra eru látnir, Aðalst. Sigm. og Steinþ. Sigurðsson, og var