Skinfaxi - 01.04.1950, Síða 63
SKINFAXI
63
þeirra sérstaklega minnzt, starfsfólk fræðslumálaskrifstofunn-
ar, Bjarni Bjarnason skólastjóri á Laugarvatni o. fl. gestir.
Þorsteinn Einarsson iþróttafulltrúi flutti langt og itarlegt
erindi um störf nefndarinnar þessi 10 ár. Lauk lofsorði á,
hversu vandlega lögin hefðu verið samin, enda ekkert tilefni
gefist enn til þess að óska eftir breytingum á þeim. Slíkt væri
fátítt með lagasetningar, einkum þegar um jafn umfangsmikil
nýmæli væri að ræða, sem þessi lög voru á sínum tima.
Margar ræður voru fluttar. Hermann Jónasson þakkaði öll-
um, sem unnið hefðu að framkvæmd laganna. Taldi þar vel
hafa tekizt til. Framkvæmdin væri engu ómerkari en lögin
sjálf. Góð lög mætti gera gagnslítil með lélegri framkvæmd.
Hann taldi næsta áfangann i þessum málum aukna heilsu-
rækt. Ljósböð fyrir almenning væri í þeim efnum mikilvægt
atriði i jafn sólarlitlu landi.
Margir aðrir tóku til máls. Voru allir sammála um að setn-
ing íþróttalaganna hefði verið hið mesta gæfuspor og fram-
kvæmd þeirra hefði tekizt með ágætum og voru Þorsteini
Einarssyni, sem verið hefur íþróttafulltrúi og framkvæmda-
stjóri íþróttanefndarinnar frá upphafi, færðar þakkir fyrir
frábærlega vel unnin störf.
Gjöf til U.M.F.Í.
Ungmennasamband Finnlands (Suomen Nuorison Liitto)
hefur sent U.M.F.Í. að gjöf, finnskan borðfána, á gljáslipuðum
marmarafæti, liið mesta listasmíði. Gjöfinni fylgdi vinsamlegt
bréf frá formanni sambandsins, Arvo Inkila, magister, þar
sem hann óskaði eftir þvi, að samvinna finnskra og islenzkra
ungmennafélaga mætti verða sem mest í framtiðinni. Stjórn
U.M.F.Í. hefur þakkað þessa kærkomnu gjöf.
íþróttamót Umf. Skeiðámannna og Umf. Baldurs,
í Hraungerðishreppi, Árnessýslu,
var haldið að Brautarholti á Skeiðum 14. ágúst 1949.
Úrslit urðu:
100 m. hlaup: Óskar Geirsson (B.) 12,8 sek.
Hástökk: Bjarni Jónsson (S.) 1,62 m.
Langstökk: Gunnar Halldórsson (B.) 5,42 m.
Þrístökk: Þorsteinn Alfreðsson (S.) 11,87. Hann vann einnig
kúluvarpið (11„53 m.) og kringlukastið (34,36 m.).
4x50 m. boðhlaup kvenna: 1. Sveit Baldurs 29,1 sek. 2. Sveit
Skeiðamanna 30,3 sek.
Umf. Skeiðamanna vann mótið með 37 stigum. Umf. Baldur
hlaut 30 stig.