Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1952, Side 8

Skinfaxi - 01.11.1952, Side 8
104 SKIKTAXI Utefán Ut. ^óniion : Starfsemi Norges Bygdeungdomsslag Á síðast liðnu sumri dvaldi ég rúman mánuð í Norcgi á vegum Ungmennafélags Islands til þess að kynna mér starfsemi Norges Bygdeungdomslag. FéÍagskapur þessi er ungur að árum, en hefur náð ævintýralegum vexti á skömmum tíma. Það er aðal- lega æska sveitanna, sem myndar þennan félagsskap. Eitt aðalviðl'angsefni hans er að kenna ungu fólki hag- nýta vinnu og vinnuaðferðir og vekja áhuga fyrir vinnunni. Hefur félagsskapurinn heitt sér fyrir margs konar vinnukeppni í þessu sambandi. Hér hefur þessi vinnukeppni fengið nafnið starfsíþróttir. Þessi keppni er allfrábrugðin hinum eiginlegu íþróttakappleikum, sem við könnumst svo vel við hér heima. En fólk áttar sig fljótt á því, að hér er um annars konar keppni að ræða, t.d. keppni í handmjöltun, vélmjöltun, plæging- um með hestum eða dráttavél, mati á búpeningi, trjá- plöntun, og svo framvegis. Norges Bygdcungdomslag er stofnað haustið 1940, þó rekja megi aðdraganda að stofnun þess allmikið lengra aftur í tímann, eða til ársins 1934. Keppni í starfsafköstum hafði verið komið á fót innan norska búnaðarsambandsins áður en NBU var stofnað, og var fyrst rætt um það, að æska sveitanna ætti eingöngu að starfa innan búnaðarsambandsins að þessum málum. En það var ekki fyrr en stofnað var sérstakt samband, að skriður komst á málið. starf allra ungmennafélaga á Norðurlöndum. Þess vegna ber okkur að stuðla að aukningu hennar. Stefán Öl. Jónsson.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.