Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1952, Síða 27

Skinfaxi - 01.11.1952, Síða 27
SKINFAXI 123 Áliorfendur fullir athygli. 4. Skreyting. 5. Heildarsvipur. Fyrir hvert atriði er gert ráð fyrir að gefa ákveðin stig, og geta þau farið upp í 100. Dómnefndin komst i hin mestu vandræði, sem við var að búast, því öll voru borðin hin glæsilegustu og erfitt að gera upp á milli þeirra. En til þess að gera skyldu sína, tilkynnti hún hinum eftirvæntingarfullu áhorfendum dóm sinn, er var á þá leið, að Lilja Þórarinsdóttir við borð 4 hlyti 1. verðlaun og Guðríður Jónsdóttir við borð 2 önnur verð- laun. Annars fór nefndin hinum mestu lofsorðum um öll borðin. Dómur þessi virtist falla áhorfendum vel í geð og fór nærri því, sem margir þeirra höfðu dæmt. Hér var hátíðlegri athöfn lokið, og þegar gengið var úr salnum heyrðust ýmsir segja, að þeir hefðu aldrei trúað því, að það gæti verið svona spennandi að leggja á borð. Þannig lauk hinni fyrstu keppni i þessari starfs- íþrótt. Hennar verður lengi minnzt af þeim, sem á horfðu. Þeirra er nú að útbreiða íþrótt þessa. Heglurnar fyrir henni eru skýrar og einfaldar. Eru þær birtar í 2. hefti Skinfaxa 1952. Hafi þessar fjórar austfirzku stúlkur, er þarna brutu ísinn, þökk fyrir. Starfshlaupið var önnur grein starfsíþrótta, sem keppt var í. Skráðir voru fjórir keppendur, og mætlu

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.