Skinfaxi - 01.07.1953, Side 5
SKINFAXI
53
standandi tíma og þess þjóðlega arfs, sem henni hefur
verið búinn. Það er hlutverk okkar í dag að velja eða
hafna menningu, tungu og trú íeðranna. Vill æskan
byggja menningu framtíðarinnar á gömlum merg, þólt
nýjar aðstæður skapist við breytta tíma? Vill hún
byggja þjóðlífið á kristinni lífsafstöðu, sem um aldir
var grundvöllur lifstrúar fólksins í landinu? Eða vill
hún byggja á einhverju öðru, þar sem þjóðlegar erfðir
og kristin trú sitja ekki lengur í fyrirrúmi? Æskulýðs-
félögin og foringjar þeirra verða hér að velja og hafna.
Svo mikil ábyrgð hvilir á ungu kynslóðiuni í dag.
S. J.
Iþróttanefnd ríkisins skipuð á ný.
Þann 2. marz í vetur skipaði menntamálaráðherra, Björn
Ólafsson, íþróttanefnd rikisins til næstu þriggja ára. Nefndin
er þannig skipuð: Þorsteinn Bernliarðsson formaður, Daníel
Ágústinusson, samkvæmt tilnefningu stjórnar U.M.F.Í. og er
hann gjaldkeri nefndarinnar, Hermann Guðmundsson, sam-
kvæmt tilnefningu stjórnar Í.S.Í. og er hann ritari nefndar-
innar.
Varamenn eru: Kristján Gestsson varaformaður, Rannveig
Þorsteinsdóttir eftir tilnefningu U.M.F.Í. og Benedikt G. Waage
cftir tilnefningu Í.S.Í.
Guðmundur Kr. Guðmundsson hefur verið formaður íþrótta-
nefndarinnar að undanförnu og rækt það starf af miklum dugn-
aði og réttsýni, eins og kunnugt er. U.M.F.Í. þakkar honum
drengilegt samstarf að þessum málum fyrr og síðar og árnar
honum allra lieilla.