Skinfaxi - 01.07.1953, Side 19
SKINFAXI
67
hans, má hins vegar finna þess mörg dæmi, hve vel
hann kunni að meta manndóm og drengskap, og er
„Helga-erfi“, um vin hans Helga Stefánsson, bróður
Jóns skálds Stefánssonar (Þorgils gjállanda), alkunn-
ugt dæmi þess, og ekki síður merkilegt fyrir það, hve
sönn lýsing það er einnig óbeinlínis á skáldinu sjálfu,
og taka þessi erindi af skarið um það, að svo er:
Meðan uppi er eikin há,
illt er vöxt að greina.
Niðrí holti heiglustrá
hæðarmörkum leyna.
Verða um stórleik merkismanns
misgár ýmiss konar.
Svo fór það um haginn hans
Helga Stefánssonar.
Sönnu næst, að sjálfir við
sæjum, hvað hann gilti,
þegar autt var öndvegið
okkar, sem hann fyllti.
Hvar sem Helgi lieitinn fór,
hyggjum við, að finnum:
eftir situr svipur stór
samt í flestra minnum.
Helgi hjóst með hug og ráð
hélzt ei inni í skála--
þegar hvöttu að drýgja dáð
dísir réttra mála.
Hreifur fram á hinztu stund
hann um mein sitt þagði,
faldi sína opnu und
undir glöðu hragði.
5+